Náttúrufræðingurinn - 1939, Qupperneq 11
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 5
•iimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii iii iii miiiiktfiiiiiiiiimiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii 111111111111111111111111111111111111111111 ii miiiiiiiiiiin
leiSina að telja fyrst hryggjarliðina, en láta svo aðrar rannsóknir
koma á eftir, ef þörf krefur, og reyndar hvort sem er.
Enda þótt) við fengjum mikið af murtu til rannsókna 1937, var
verkið enn þá ekki nema hálfunnið, þar sem enn þá skorti rann-
sókn á nægiiega miklum fjölda af bleikju. Haustið 1937 og all-
an næsta vetur náðist aðeins í 36 stórbleikjur, 24 smábleikjur
á murtustærð, og auk þess 104 svartmurtur. Á árinu 1938 tókst
okkur að bæta við þetta allmiklu, svo að öll þau gögn, sem rann-
sökuð hafa verið eins og að ofan greinir, eru nú:
1600 murtur,
203 stórbleikjur (riðbleikjur og netableikjur),
24 smábleikjur,
104 svartmurtur og
11 urriðar.
Fyrir utan þetta hefir hr. Símon Pétursson, bóndi í Vatnskoti,
mælt fyrir mig nærri 700 murtur og ákvarðað kynferði þeirra,
svo að samtals hafa verið mældar 2293 murtur. Á hinn bóginn
hafa ekki verið taldir hryggjarliðir með öruggum árangri í nema
1356 murtum, og á þeim byggjast þær niðurstöður, sem að neðan
greinir.
III. MURTAN.
Öll sú murta, sem rannsökuð hefir verið, er veidd í Vatnskoti
í net. Riðill netanna kvað vanalega vera 7/g, en einnig 15/1(i og Vi.
Undanfarin ár kvað hafa veiðzt einna bezt í stærsta riðilinn. Hér
fer á eftir yfirlit yfir stærð á þeirri murtu,. sem mæld hefir verið
haustið 1937 og 1938. Lengdin er, eins og séð verður, all-breyti-
leg, allt frá 18 cm upp í 32 cm, þótt það sé undantekning (aðeins
einn fiskur 1937). Meðallengdin á allri þessari murtu reyndist
22.9U cm, eða tæpir 23 cm. Þorrinn af murtunni, eða 60%, er 22,
23 og 24 cm.
Auk töflunnar, sem að ofan er, gefur einnig 1. mynd góða hug-
mynd um stærðarhlutföll murtunnar í Þingvallavatni, eins og þau
hafa verið í N-enda þess á tveimur síðast liðnum árum. En í sam-
bandi við stærðina er þó rétt að taka ýmislegt fram. Það hefir
t. d. sýnt sig, að allmikill munur er á stærð hænga og hrygna, en
það sýnir 2. tafla.