Náttúrufræðingurinn - 1946, Side 33
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
27
Spirogyra, grænþörungur, þræðir
með gormlaga grænukornum og ok-
frumum. 100-föld stækkun. (Ljósm.
Sig. I’étursson).
skilja þá er það ekki a 11 taí: hægt og oí't er nauðsynlegt að geyma
vissar tegundir og sýnishorn til samanburðar.
Vefjasýnisliorn bæði úr dýra- og jurtaríkinu er algengast að
geyma annað hvort í formalíni eða vínanda. Hvorugt þessara efna
er nothæft fyrir þörunga, nema fleiri efni séu tekin til hjálpar. Sú
aðferð, sem mér hefur gefizt bezt er á þessa leið: Sýnishornin eru
tekin í glös með góðum tappa og haft á þeim nægilegt vatn svo að
rúmt sé um þörungana. Innan eins eða tveggja daga er vatninu helt
gætilega af og sýnishornið sett í svokallað cúprí-laktófenól (eftir
Amman), sem þannig er samsett:
Karbólsýra, kristalliseruð............... 20 gr.
Mjólkursýra, eðlisþyngd 1,21 ............ 20 —
Glyserin, eðlisþyngd 1,25 ............... 40 —
Eimað vatn............................... 20 —
IJessi uplausn, sem nefnd er laktofenól er þynnt og blönduð á eft
irfarandi hátt:
Laktofenól ............................. 5 gr.
Eimað vatn............................. 95 —
Cúpríklóríd ...........................0,2 —
Cúpríacetat ...........................0,2 —
Er upplausnin þá tilbúin til notkunar.