Náttúrufræðingurinn - 1946, Blaðsíða 50
44
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
1. mynd. John Dalton (1766—1844).
að smíða vélar, sem hagnýtt gætu
þá orku. En nú er svo að sjá, eftir
þeirn fregnum, sem borizt hafa, að
þeir, sem við þessi mál fást, telji
sennilegt, að eftir 10—15 ár verði
orðið hægt að hagnýta orku atóm-
anna í atómorkuvélum. Mun eng-
inn ganga þess dulinn, að á kom-
andi árum megi vænta mikilla fram-
fara á sviði atómarannsóknanna. I
grein þeirri, sem hér fer á eftir, er
ætlunin að gera stutta grein fyrir
sögu atómrannsóknanna og helztu
niðurstöðum, sem af þeim liafa
fengizt.
O
II. Grundvallarliugtök og brautryðjendástarf.
Atómuhugtakið er upphaflega til orðið hjá Grikkjum; jicir lögðu
fyrstir manna niður fyrir sér, hvort skipta mætti efninu niður í ó-
endanlega smáar agnir án þess að raska eðli Jiess. Komust jieir að
þeirri niðurstöðu, að takmörk væru fyrir því, hversu smátt mætti
skipta efninu niður í agnir án jiess að raska eðli þess, á sama hátt og
ekki er hægt að skipta mannþyrpingu niður í smærri einingar en
einstaklinga, nema þá með því að raska mjög eðli eininganna. Þessar
smæstu agnir, sem skipta mætti efni í, nefndu Grikkir atórnur (a =
ekki; tomos = skeranlegur), ódeilisagnir, frumeindir. Að öðru leyti
gerðu Grikkir sér mjög óljósar hugmyndir um atómur, og var þýð-
ing atómakenningar þeirra fyrst og fremst heimspekileg. Árið 1808
vakti John Dalton liina fornu atómakenningu að nýju, en sá var
munurinn, að Dalton byggði sína kenningu á raunvísindalegum
athugunum, og eru meginatriði atómakenningar Daltons jiessi: (1)
Minnstu agnir, sem skipta má efni niður í, nefnast atómur eða frum-
eindir. (2) Atómur, sama frumefnis, liafa allar sams konar eiginleika,
eru allar jafnþungar. (3) Atómur, ólíkra frumefna, liafa ólíka eigin-
leika, eru misþungar. (4) Minnstu agnir, er skipta má efnasambönd-
um niður í, heita mólektilur (moles = hrúga, þyrping; cula = smækk-
unarending),smáhópar, sameindir.og eru þær myndaðar við samruna
fleiri eða færri atóma. Kenning Daltons reyndist hin nýtasta og
merkasta til skilnings á ýmsum fyrirbærum efnafræðinnar. Brátt fór