Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1946, Side 46

Náttúrufræðingurinn - 1946, Side 46
40 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Á hinn bóginn eru margvíslegar verkanir blóðsins bundnar við eggjahvítuefni blóðvökvans, má því oft notast við blóðvökvann ein- ann eða viss eggjahvítuefnasambönd hans.Bióðvökvannmáþurrkaog geyma, og hefir hann mikið verið notaður í stríðinu, og liafa millj- ónir manna gefið blóð sitt í þessu skyni. Hefir iiann rnikið verið notaður bæði til þess að lækna taugaáföll (,,shock“) og eins til þess að koma í veg fyrir að menn fái þau. Slysataugaáföll stafa oftast af skyndilegri rúmtaksminnkun blóðsins vegna blóðmissis og vöntunar á eggjahvítuefnum blóðvökvans. Hringrás blóðsins verður ófull- komin vegna blóðskorts eða öllu heldur vegna blóðþykknunar, sem stafar af meiri missi blóðvökva en rauðra blóðkorna. Úr þessu er bætt með því að auka blóðmagnið svo, að það verði eðlilegt, og kemst þá blóðrásin aftur í samt lag. Blóðmagnið má þarna auka með því að dæla inn uppleystum eggjalivítuefnum blóðvökvans. Eggjahvítu- efni eru efni, senr hafa stórar sameindir, þau eru mjög flókin og margþætt að gerð og samsetningu, enda eru þau þýðingarmesti efni- viður líkamans. Eggjahvítuefni blóðvökvans eru næsta margbreyti- leg að stærð og lögun. Minnsta stærð þeirra, gildleikinn, er sem næst hinn sarni fyrir þau öll og er um það bil fimmfaldur gildleiki sykur- sameinda. Litlar sameindir skolast auðveldlega úr blóðinu og út í vefina eða í gegnum nýrun, og eru þær því síður til þess fallnar að fyrirbyggja og lækna taugaáföll en blóðvökva-eggjalivítuefnin, sem vegna stærðar sinnar skolast ekki úr blóðinu. Tveir þriðju hlutar eggjahvítusameinda blóðvökvans eru þeirrar tegundar, sem nefnist albumin, og er það efni, sem fyrst og fremst viðheldur rúmtaki blóðsins. Albumin sameindirnar eru minnstar alira blóðvökva-sameindanna, þær eru því næst hnattlaga, auðupp- leystar í vatni og stöðugastar allra blóðvökvasameinda. Er því auð- velt að útbúa úr þeim sterka upplausn, sem rennur eins vel og blóð og verkar læknandi á taugaáföll. Efni þetta hefir því oft kontið að góðu haldi. Við vinnslu albumins úr blóðvökvanum næst til annarra eggja- hvítuefna blóðvökvans, og eru margs konar læknisfræðileg not af þeim. Má aðgreina blóðvökvaeggjalivítuefnin á ýmsan hátt. Náskyld eggjahvítuefni má aðgreina t. d. með því að notfæra sér mismunandi uppleysanleika þeirra í vatnieðavatns-vínandablöndumviðmismun- andi sýrustig og hitastig. Hafi það tekizt, að gera ákveðna tegund eggjahvítuefnanna lítt uppleysanlega, má skilja botnfallið frá í sér- stakri skilvindu og síðan þurrka það að hvítn dufti, sem geyma má eins lengi og verkast vill. Annað efni í blóðvökvanum nefnist fibrinogen. Það er miklu

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.