Náttúrufræðingurinn - 1946, Síða 48
42
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
HITT OG ÞETTA
Ferðabók Sveins Pálssonar
Ollum unnendum íslenzkrar náttúrufræði var hinn mesti fengur
að því er Ferðabók Sveins Pálssonar kom út í íslenzkri þýðingu
þeirra Jóns Eyþórssonar, Pálma Hannessonar og Steindórs Steindórs-
sonar skömmu fyrir síðustu áramót.
Með þessari myndarlegu og vönduðu bók er fyllt í eyðu íslenzkra
bókmennta, sem alltof lengi hefir staðið auð. Sveinn Pálsson, rann-
sóknir hans og rit hafa fram til þessa verið huliðsheimar, sem ekkí
nema fáir útvaldir hafa átt kost á að skyggnast inn i.
Bókin nær yfir öll aðalrit Sveins Pálssonar, auk formála, skýringa
og registurs. Skiptist hún þannig:
Formáli um handritið og bókina. Helztu rit Sveins Pálssonar. Um
höfundinn og verk hans. (J. Eyþ.). I. Dagbækur: Dagbók 1791 og
1792 (St. St.). Dagbók 1793 (P. H.). Dagbók 1794 (J. Eyþ.). 11. Rit-
gerðir: Jöklaritið. Eldritið (J. Eyþ.). Lýsng Gullbringusýslu. Lýsing
Hegranessýslu (P. H.). Ferð til Fiskivatna sumarið 1795. Reykjanes-
för 1796. Ferð til Geysis og Heklu sumrið 1797 (J. Eyþ.). III. Við-
aukar: Anniversaria 1795 (J. Eyþ.). Anniversaria 1796 (J. Eyþ. og
St. St.). Anniversaria 1797 (J. Eyþ.). Skrá um náttúrugripi, að mestu
á latínu (St. St. og J. Eyþ.). Skýringar á atriðum úr lesmáli. Registur:
A. Helztu rit og rithöfundar, senr S. P. vitnar í. B. Samheiti og atriðs-
orð, dýra- og jurtaheiti. C. Staðanöfn og mannanöfn. D. Nokkur
latnesk tegundaheiti, sem S. P. notar, en nú eru úrelt.
í gegnum hinar miklu og merku náttúrufræðilegu ritgjörðir
Sveins, sem á sumum sviðum voru algerlega brautryðjandi, má lesa
hinn sérstæða og sterka persónuleika Iians. Þýðendurnir hafa unnið
verk sitt af hinni mestu alúð og eru skýringar þeirra mjög fræðandi
og vel fyrir komið. Er öll útgáfa bókarinnar hin prýðilegasta.
S. Þ.
Hinn þekkti landkönnuður, Lincoln Ellstvorth, hefir nýlega kom-
ið fram með þá tillögu, að komið verði upp hópi af veðurathuguna-
stöðvum á meginlandi Suðurheimskautalandsins. Telur hann, að þá
fáist skilyrði til veðurspáa langt fram í tímann á öllu suðurhveli jarð-
ar. Bendir EUsworth á, að Suðurheimskautslandið hafi mikil áhrif á
veðráttu suðurhvelsins. Hefir hann sýnt fram á með athugunum, sem
hvalveiðamenn hafa gert þar syðra, að eftir mikla kulda við Weddell-
haf komi þurrkasumur í kornræktarbelti Suður-Ameríku.