Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1953, Side 3

Náttúrufræðingurinn - 1953, Side 3
Knut Fægri: Grundvallarrit grasaírœðinnar1) — 200 ára afmœli. — Það má víst með fullum rétti spyrja, hvaða rit gæti staðið undir titli þeim, sem ég hef valið þessari grein. Það eru ekki svo fáar bæk- ur, sem í sögu hverrar vísindagreinar valda straumhvörfum, bækur, sem flytja svo nýstárlegar og byltandi kenningar, að vísindastarfið fær nýja stefnu, og hægt er að skipta tímanum í tímabilið fyrir og tímabilið eftir útkomu bókarinnar. Bók Hofmeisters: „Vergleichende Untersuchungen“, sem út kom árið 1851, er ein slík bók, bók Darwins „Origin of Species“, útgefin 1859, er önnur. Enda þótt hugmyndir þær, sem bækur þessar neyddu upp á oss, séu ennþá til umræðu, og hluti þeirrar undirstöðu, sem dagleg vísindastarfsemi byggist á, þá hafa þó bækur þessar einkum sögulegt gildi. Það er vel hægt að gera rannsókn á ættliðaskiptum, án þess nokkru sinni að hafa lesið bók Hofmeisters eða heyrt hans getið. Það er ekki auðvelt að komast hjá þvi að hafa heyrt Darwins getið, en maður þarf ekki að hafa les- ið „Origin of Species", til þess að geta framkvæmt rannsóknir í erfðafræði, þarf ekki, sagði ég, en auðvitað hefði maður átt að gera það. Enda þótt hugmyndir, sem bókin flytur, séu enn til umræðu eftir hundrað ár, getur bókin sjálf verið úrelt, og maður les hana ef til vill aðallega af sagnfræðilegum áhuga, til þess að sjá það með eigin augum, að í henni er sagt það, sem við öll héldum að stæði þar. En hver er hún þá, bókin, sem ég hafði í huga og haldið hefur gildi sínu í 200 ár? Það er Caroli Linnaei Species Plantarum . . ., framhald þessa langlokutitils getið þér sjálfur lesið á næstu opnu. Og ástæðan til þess, að bók þessi er notuð enn þann dag í dag, er ekki fólgin í því, að hún lýsi djúpsæjum sannindum, eins og hinar bæk- urnar, sem ég nefndi, heldur ofur einfaldlega í smávægilegu en hag- rænu atriði. Ef til vill er það einmitt einkennandi fyrir Linné, að það var fyrir- komulagsatriði, sem gerði verk hans ódauðlegt. Linné er einn þeirra stórmenna, sem seint verða krufðir til mergjar. Sumir hefja hann til 1) Grein þessi birtist upphaflega í norska timaritinu „Naturen", nr. 12 1953, og er birt hér með leyfi höfundar. !□

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.