Náttúrufræðingurinn - 1953, Blaðsíða 29
ISLENZKIR FUGLAR VII
171
lífshætti. Tveir Englendingar, James Fisher og H. G. Vevers, hafa hin
síðari ár kannað útbreiðslu súlunnar mjög rækilega og hafa þeir beitt
sér fyrir því, að hreiður eða varppör í hinum ýmisu súlubyggðum
hafa verið talin. Fór slík talning fram árið 1939 og aftur 1949 að
nokkru leyti. Þeir hafa einnig heimsótt hinar íslenzku súlubyggðir og
við rannsóknir sínar hér hafa þeir notið aðstoðar Þorsteins Einarsson-
ar íþróttafulltrúa, en hann er allra manna fróðastur um hinar ís-
lenzku súlubyggðir og lífshætti súlunnar hér á landi. Samkvæmt nýj-
ustu niðurstöðum þeirra Fishers og Vevers (frá 1949) eru nú kunn-
ar 32 súlubyggðir með 95390 hreiðrum og skiptast þær þannig niður
á hin einstöku lönd við norðanvert Atlantshaf: í Frakklandi er aðeins
1 byggð (les Sept íles við Bretagne-skaga) með 77 hreiðrum; á Bret-
landseyjum eru 15 byggðir með 64136 hreiðrum (Ermarsundseyjar
2 byggðir með 643 hreiðrum, Wales 1 byggð með 9200 hreiðrum,
England 1 byggð með 2 hreiðrum, Skotland 8 byggðir með 41994
hreiðrum, Irland 3 byggðir með 12297 hreiðrum); í Noregi er að-
eins 1 byggð (Rundoy í grennd við Álasund) með 8 hreiðrum; í
Færeyjum er aðeins 1 byggð (Mykineshólmur) með 1473 hreiðrum;
á fslandi eru 5 byggðir (4 byggðir í Vestmannaeyjum taldar sem ein
byggð) með 16695 hreiðrum; á austurströnd Norður-Ameríku (Kan-
ada og Nýfundnalandi) eru 9 byggðir með 13001 hreiðri. Samkvæmt
þessu yfirliti eru því 23 byggðir með alls 82389 hreiðrum við austan-
vert Atlantshaf og við vestanvert Atlantshaf 9 byggðir með 13001
hreiðri. 1 byggðunum við vestanvert Atlantshaf hefur talning ekki
farið fram síðan 1939, en vitað er með vissu, að súlunni hefur farið
þar fjölgandi síðan, og mun því ekki fjarri lagi að gera ráð fyrir, að
fjöldi hreiðra í heiminum sé nú um 100.000 og fjöldi fullorðinna
kynþroska fugla því um 200.000.
Hér á landi eru súlubyggðir nú í 4 úteyjum í Vestmannaeyjum
(Súlnaskeri, Helhsey, Geldungi og Brandi) og auk þess í Eldey,
Rauðanúpi á Melrakkasléttu og Skrúðnum út af Fáskrúðsfirði. Hinna
fjögurra súlubyggða í Vestmannaeyjum er þegar getið í heimildum
frá öndverðri 18. öld (Vestmannaeyjalýsingu séra Gizurar Pétursson-
ar og Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns), og er þar tekið
fram, að þetta séu einu varpstöðvar súlunnar í Vestmannaeyjum. Við
talningu árið 1939 reyndust súluhreiðrin í Vestmannaeyjum vera
4359 og árið 1949 5534. Árið 1949 reyndust vera 1918 hreiður í
Súlnaskeri, 2216 í Hellisey, 913 í Geldungi og 487 í Brandinum.
1 Eldey er mesta súluhyggð hér á landi og jafnframt ein hin mesta