Náttúrufræðingurinn - 1953, Page 43
LAXAMERKINGAR 1947—51
183
inum, sem gengur í árnar, er því safnað í kistu neðan við rafstöðina
og hann fluttur upp fyrir Árbæjarstífu á bifreiðum, í kistum með
vatni, og sleppt þar. Þannig fer meirihluti laxins, er í árnar gengur,
um hendurnar á starfsmönnum rafveitunnar, og er því auðvelt að
fá upplýsingar um alla merkta laxa, sem í kistuna koma. Þá er dreg-
ið á í Elliðaánum á haustin til öflunar stofnfisks vegna klakreksturs
Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Er þá m. a. dregið á þann hluta Elliða-
ánna, sem er fyrir neðan laxakistuna, og næst þar til mikils hluta
þeirra laxa, sem ekki ganga upp í kistuna. Auk upplýsinga um merkta
laxa, sem í kistuna koma og fást í ádrátt, skila stangaveiðimenn
merkjum af þeim löxum, er þeir veiða.
Á árunum 1948—51 hafa verið merktir 459 laxar í Elliðaánum
og var þeim flestum sleppt aftur að lokinni merkingu í árnar neðan
við rafstöðina. 43 merktir laxar eða 9.4% komu aftur fram, þar af
38 í Elliðaánum, einn í veiðitæki í Grafarvogi, sem er skammt und-
an Elliðaárósi, tveir í Úlfarsá og tveir fundust dauðir skömmu eftir
að þeir komu í sjó, annar vestan við Elliðaárósa og hinn í ósi Mógils-
ár í Kollafirði.
Við athugun á því, hve langur tími leið frá því að laxarnir voru
merktir og þar til þeir komu fram, kemur í ljós, að langflestir höfðu
verið 1 vetur í burtu eða samtals 40. 38 gengu i sjó og 2 voru um
kyrrt í ánni. Þeir veiddust ofan við Árbæjarstíflu fyrrihluta veiði-
tímans (20. júní). Einn hinna 38 laxa kom tvö sumur í röð til að
hrygna og var honum sleppt með merktum löxum í bæði skiptin.
Hafði hann þá komið þrisvar upp í ána til að hrygna. Einn lax kom
aftur eftir tveggja vetra dvöl í sjó. Tveir laxar fundust í sjó skömmu
eftir að þeir voru merktir, eins og áður getur.
Ef endurheimtumar eru flokkaðar niður eftir því, hvar þeirra varð
vart, sést, að af þeim 39 löxum, sem koma fram eftir veru í sjónum,
fengust 27 (69.2%) í laxakistuna og vom þeir allir fluttir upp fyrir
Árbæjarstíflu nema tveir, 6 (15.4%) í ádrátt, 3 (7.7%) á stöng, 1
(2.6%) í veiðivél í Grafarvogi og 2 (5.1%) í tJlfarsá.
Ef finna á sambærilegan hundraðshluta endurheimtra laxa fyrir
Elliðaárnar og aðrar ár, sem lax var merktur í, má aðeins taka með
merkta laxa, sem komu fram annars staðar en í laxakistuna og í
ádrátt, og voru þeir 14 talsins eða 3% af merktum löxum. Tveir
(0.4%) þeirra fundust í sjó stuttu eftir að þeir vom merktir, 10
(2,2%) komu aftur í árnar eftir einn eða tvo vetur í sjó og 2 (0.4%)
gengu ekki í sjó. Af 10 löxunum, sem í sjó gengu, veiddust 4 á stöng