Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1966, Side 28

Náttúrufræðingurinn - 1966, Side 28
22 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN þaðan nokkurn veginn skemmstu leið og undan mestum halla til sjávar. En þar þverbeygði liann til hægri samsíða ströndinni og mjakaðist í þá átt á að gizka 50—100 m veg. Á þessum kafla, neðan við beygjuna, var hraunállinn orðinn mjög storkinn á yfirborði, svo að hann glóði aðeins á blettum, enda mjög hægfara og naum- ast merkjanleg hreyfing á honum allra fremst. Yfirborð hans sýndist hallalaust eða því sem næst og aðeins fáeinum metrum ofar sjávar- borði, svo að brimskvettur gengu þar yfir. Því var líkast sem hraunið kynokaði sér við að renna undan brattanum niður í djúp- ið. Verður að ætla, að hinn ytri (vinstri) jaðar þessa hrauntaums hafi hraðstorknað af snertingu við sjóinn og staðið eins og stíflu- garður við kvikunni fyrir ofan. Ef til vill ýtti hún honum eitthvað fram, ofurhægt eða í smárykkjum, þó að ekki gæti ég greint það. En það bar við, að glóandi kvikutotur teygðust fram yfir stífluna og hurfu í brimið og stórkostlega gufubólstra, sem þarna hnykluð- ust upp í sífellu, og sló á þá eldbjarma í næturhúminu. í sömu ferð laust eftir miðnætti lónaði varðskipið „Albert“ með okkur Surtseyjarfara skammt undan suðvesturströnd eyjarinnar, þar sem hraunrennslið var hvað mest út í sjó. Þá var ekki að sjá, að hraunið hægði verulega á sér né sveigði með ströndinni þar sem það kom í sjóinn, heldur virtist það belja beint út. Vegna rökkurs og mjög takmarkaðs skyggnis af völdum gufubólstra gat ég ekki gengið úr skugga um, hvort þarna var um að ræða þann hraun- straum, sem fyrr var getið og mér hafði fyrir stundu orðið starsýnt á ofan af eynni, eða annan litlu austar. Hafi þetta verið sama hraun- ið, var það nú orðið breytt, ytri jaðarinn ef til vill brostinn. Þar sem hraunið féll í sjóinn, rak hver sprengingin aðra. Hraunflygs- ur, flestar svartar, en sumar rauðglóandi síur, þeyttust þar í loft upp, stundum í samfelldum strókum, á að gizka um 30 m háum. Þetta líktist raunverulegu eldgosi, en var efalítið aðeins gervigos úr hraunflóðinu. Til að sjá virtust mér þessar sprengingar eiga sér stað fast við strandlínuna, en þó eindregið heldur utan við hana, neðansjávar. Að því leyti var þetta gervigos ólíkt þeim, sem hinir alkunnu gervigígar í hraunum hér á landi vitna um, en þó vænt- anlega af sömu völdum: sprengþenslu innibyrgðrar vatnsgufu und- ir glóheitu hrauni. Hinn 13. sept. 1964 var ég staddur á strandferðaskipinu „Herj- ólfi“ á sömu slóðum undan strönd Surtseyjar og sá flest hin sömu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.