Náttúrufræðingurinn - 1966, Síða 50
44
NÁTTÚRUFRÆÐI NGURINN
þessum steini og enn ólíklegra, að slíkt grjót sé að finna á yfirborði
hérlendis.
Um hina möguleikana er það að segja, að víða er hér að finna í
fjörum grjót, sem komið liefur sem kjölfesta í skipum. Venjulega
eru þetta hnullungar höfuðstórir eða litlu stærri, og ekki veit ég
um slíka steina svipaðrar stærðar og ofangreindan stein, sem mun
vega nálægt 600 pundurn. Hugsanlegt væri, að liann hefði átt að
notast sem legsteinn, en ekki sýnist mér þó líklegt að jafn mislitur
steinn hefði verið valinn til slíks.
Er þá að lokum sá möguleiki, sem iíklegastur má teljast, sem sé
að steinninn hafi borizt með hafís. Vafalaust er, að töluvert af
grjóti hefur borizt á íslenzkar fjörur með liafís og munu ýmsir
kannast við stóran stein á Tjörnesfjöru nokkuð sunnan við Hall-
bjarnarstaðaá. Þann stein sýndi Guðmundur Bárðarson mér í 5.
bekkjarferð vorið 1931 og sagði hann hafa borizt með ís, enda lítill
vafi á því, en þessi grænleiti, flykrótti steinn (7. mynd) mun vera
ignimbrít. Hins vegar er á það að líta, að Breiðafjörður er sá lands-
hluti, þar sem hvað minnstar líkur eru fyrir ísreki. Mun þess aðeins
tvisvar getið, síðan land byggðist, að hafís hafi komizt suður fyrir
Látraröst og eitthvað inn á Breiðafjörð, árið 1685, sem líklega er
mesta ísár, sem sögur fara af hérlendis, og aftur 1787. Mér er tjáð,
að í vík vestan í Melrakkaey í mynni Grundarfjarðar sé mikið af
graníthnullungum og korni þeir fram undan jarðvegi, sem sjór sé
að brjóta. Sé stálið allt að 2 metra hátt og þó nokkuð af moldar-
jarðvegi efst í því. Bendir þetta til þess, að hér sé um að ræða grjót,
sem borizt hafi þangað fyrir landnám, en þetta þarf auðvitað að
kanna nánar. Haft skal í huga, að vel getur hafís hafa gengið inn
í Breiðafjörð undir öðrum loftslags- og straumaskilyrðum, t. d. á
holtasóleyja (Dryas) skeiðunum og í byrjun norrænnar járnaldar,
þótt hann geri það ekki lengur, og borið þá með sér grjót, einkum
frá Grænlandi, en hugsanlega lrá öðrum svæðum, er liggja að
Norður-íshafinu. Þess má og geta í þessu sambandi, að fyrir milli-
göngu Kristjóns Ólafssonar sendi Sigurjón Halldórsson, skipstjóri
í Grundarfirði, mér stein utan af Breiðafirði, sem komið hafði upp
með dreka (akkeri) á bátnum Faisæl vorið 1960. Kann ég honum
beztu þakkir fyrir, því mér þótti steinninn merkilegur. Þetta er
tinnusteinn og ekki smár (8. mynd). Lengd lians er 55 cm, mest
breidd 40 cm og mest þykkt 20 cm. Gat er í gegnum hann miðjan,