Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1966, Page 76

Náttúrufræðingurinn - 1966, Page 76
70 NÁTTÚIUJFRÆÐINGURINN uppgötvun Baades árið 1952, kom fréttin eins og reiðarslag yfir flesta stjörnufræðinga, sem höfðu haft trausta trú á fyrri fjarlægðar- mælingum. Það er auðvelt að vera vitur eftir á, enda kom brátt á daginn, að ýmsar augljósar vísbendingar höfðu lengi verið fyrir hendi, þótt þeim hefði ekki verið gaumur gefinn. Það var ekki fjarlægð Andrómeduþokunnar einnar, sem þurfti endurskoðunar við, heldur fjarlægðir allra stjörnukerfa, sem lengra voru í burtu. Þvermál heimsmyndarinnar tvöfaldaðist, ef svo mætti segja. Við þessa leiðréttingu urðu stjörnuþokurnar loksins sam- bærilegar við vetrarbrautina að stærð. Vetrarbrautarkerfið hætti að hafa sérstöðu í heimsmyndinni, því að samkvæmt henni var alheim- urinn nú byggður hliðstæðum vetrarbrautum, svo langt sem augað eygði. Leiðréttingin á fjarlægðakvarðanum var ekki eina afrek Baades. Á árunum 1940—1950 sýndi hann fram á, aðallega með rannsókn- um á Andrómeduþokunni, að stjörnur í vetrarbrautum skiptast í tvo ólíka hópa, sem Baade kallaði stjörnubyggðir. í sveipþokum, eins og okkar vetrarbraut taldist vera, er önnur stjörnubyggðin mest í kjarnanum og í dreifðum kúluþyrpingum, en hin byggðin fylgir örmunum, sem sveipast út frá miðjunni. Sumar tegundir af risastjörnum fylgja örmunum sérstaklega vel, og Baade varð ljóst, að með því að leita uppi slíkar stjörnur í okkar vetrarbraut, mæla birtu þeirra og áætla fjarlægðina, væri hugsanlegt að rekja slóð armanna í vetrarbrautinni og finna innri lögun hennar, en það vandamál hafði áður reynzt óleysanlegt. Stjörnufræðingar urðu fljótlega til að taka upp þessa hugmynd, sem reyndist afbragð, því að risastjörnurnar voru svo bjartar, 10— 100 þúsund sinnum bjartari en sólin, að þær sáust rnjög langt að. Árið 1951 hafði þegar tekizt að draga upp mynd af nokkrum örm- um eða hlutum úr örmum í vetrarbrautinni, allt upp í 12 þúsund Ijósára fjarlægð frá jörðinni. En í þeirri fjarlægð var geimrykið orðið svo ógegnsætt, að lengra varð tæplega komizt. Þá var það, sem ný fræðigrein kom til skjalanna, útvarpsstjörnu- frœðin. Árið 1931 hafði Karl nokkur Jansky, starfsmaður hjá Bell símafélaginu í Bandaríkjunum, gert þá merku uppgötvun, að út- varpsöldur bærust til jarðar utan úr himingeimnum. Þótt upp- götvun Janskys vekti verðskuldaða athygli, liðu fimmtán ár, áður en nokkuð væri farið að rannsaka þetta fyrirbæri að gagni. En þá
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.