Náttúrufræðingurinn - 1969, Síða 9
NÁTT Ú RU F RÆÐÍNGURINN
119
a. m. k. 5 m hæð yfir yfirborði lónsins, en háflæði var og brim af
austri. Ekki virtist hækka í lóninu við þetta innflæði og töldu þeir
sem á horfðu, að vatn færi úr lóninu gegnum norðurvegg gígkeil-
unnar og inn í aðalgíginn.
19. júlí. Vart varð öskufalls í Eyjum.
21. júli. Talsverð gosfýla í Eyjurn. Gosið slitrótt, en sumar hrin-
urnar kröftugar. Vatn flæddi inn í gíginn.
25. -26. júlí. Allmikið gos. Fyrir kom að eyjan hreinsaði sig
alveg.
29. júlí. Gosið það minnsta í lengri tíma. Algjör hlé allt að
5 mínútum. Hæstu strókar um 400 m.
30. júlí. Goshlé lengri en daginn áður.
1. —7. ágúst. Gosið mjög rénandi.
8. ágúst. Einstöku sprengingar, smáar.
9. ágúst. Örlitlar sprengingar af og til síðari hluta dagsins.
10. ágúst. Sprengingar sáust í síðasta sinn í gígnum í Jólni.
Flatarmál eyjarinnar um 16 ha.
14. ágúst. Grængrá, lygn tjörn í gígnum (mynd II b). Hring-
laga misgengissprungur í gígnum að innan.
21. ágúst. Jólnir kannaður allvel. Norðurbarmur gígsins 62 m
hár. Halli gígkeilunnar að utan 32°, mestur halli innveggja gígsins
42°. Gígurinn að síga saman um hringlaga sprungur. Svolitlar hraun-
slettur hafa í goslok komið upp úr örmjórri eldrás skammt A af
gígtjörninni. Yfirborðshiti í tjörninni um 40° C.
20. sept. Af Jólni var ekki annað eftir en hvalbakur, 15—20 m
langur á flóði, og gekk sjór þá nær yfir hann (4. rnynd).
2. okt. Rif sást, er fjara var, og á því sátu 2 ritur.
14. okt. Rifið svipað.
26. okt. Enn sást rif á fjöru og lágu þrír selir á því.
31. okt. Rifið horfið, en Jaað braut á Jólni enn.
/. marz 1967. Síðasta sinn, er ég sá brjóta á Jólni.
Lýkur Jrar með annál Jariðju eyjarinnar og þeirrar síðustu, er
myndaðist í Eyjaeldum. í nærfellt 10 mánuði sást til Jaessarar eyjar
og varð saga hennar um helmingi lengri en saga systureyjarinnar,
Syrtlings, og mesta flatarmál varð líka um það bil helmingi meira
en Syrtlings, eða 28 hektarar, en mesta hæð varð svipuð, eða um 70 m
yfir sjávarmál. Gosið hagaði sér líkt og gosið í Syrtlingi, en sígos
voru Jró meira áberandi í Jólni, enda var gígur hans oftar lokaður.