Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1969, Blaðsíða 104

Náttúrufræðingurinn - 1969, Blaðsíða 104
208 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN vegum varð að hætta við ferðina. Var þá ákveðið í skyndingu að fara jarð- fræðiferð um Reykjavík. Fyrst var skoðaður fjörumór í Seltjtirn og fuglalíf við Bakkatjörn og Suðurnes. Síðan voru skoðaðar tertíerar bergmyndanir við Við- eyjarsund, setlög í Háubökkum og Ártúnshöfða, mór undir Elliðaárhrauni í eystri kvísl Elliðaánna og árrof við fossa í vestri kvísl, hvarfleir í bökkum við skeiðvöllinn og setlög í Fossvogi. Að lokum var litast um af Öskjuhlíð og jarð- fræði umhverfis skýrð. Mjög gott veður var og heppnaðist ferðin vel, þótt stutt væri farið og einungis litið á jarðmyndanir, sem daglega verða á vegi okkar. Þátttakendur voru 25. Leiðbeinendur voru Jón B. Sigurðsson, Kristján Sæmundsson og Þorleifur Einarsson. Önnur ferð sumarsins var tveggja daga ferð með m/s Esju á hvalamið út af Snæfellsjökli og um BreiðafjörS. Lagt var af stað úr Reykjavík kl. 14.00 laugar- daginn 1. júlí. Haldið var á hvalamið 80—90 sjómílur vestur af Snæfellsjökli og komið þangað unr miðnætti. Sást þegar allstór langreyður og var elzt við hana um skeið. Skömmu cftir að hún hvarf sýnum, sást önnur langreyð- ur og var fylgzt með henni langa hríð. Nokkur gola var þarna úti á regin- hafi og gerði sjóveiki aðeins vart við sig. Á fjórða tímanum um nóttina var snúið til lands og komið undir Óndverðarnes á áttunda tímanum. Var síðan siglt meðfram landi í fegursta veðri og inn á Grundarfjörð og horft til jarð- myndana, sem skoðaðar voru í fræðsluferð árið áður. Síðan var stefna tekin á Flatey og lagzt þar að bryggju upp úr liádegi, og hafði ekki kornið þar :,vo stórt skip áður. Var síðan gengið á land og litazt um. Dreifðist hópurinn mjög og huguðu menn að ýmsu, svo sem áhuginn beindist. Eftir þriggja tírna dvöl í Flatey voru landfestar leystar og siglt að Látrabjargi. Siglt var undir björgunum og fylgzt með iðandi lífi bjargfuglsins í stærsta fuglabjargi norðurhjarans. Undir miðnætti var komið að Bjargtöngum. Var jrar snúið við og haldið áleiðis til Reykjavíkur og komið þangað á áttunda tímanum á mánudagsmorgni. Veður var eins og bezt varð á kosið allan tímann og heppnaðist ferðin vel. Þátttakendur í ferðinni voru um 140, eða eins margir og skiprúm leyfði. Ferð jjessi var farin sameiginlega á vegum félagsins og Fuglaverndunarfélagsins. Mestan vanda af undirbúningi hafði Árni Waag, og var hann fararstjóri, en auk lians leiðbeindu Jónas Sigurðsson, skólastjóri Sjómannaskólans, og Þor- leifur Einarsson. Sunnudaginn 16. júlí var farin hálfsdags fræðsluferð til gróðurathugana um Kaldárbotna, Flelgadal og Búrfell. Veður var gott. Þátttakendur voru 35. Leið- beinandi var Ingimar Óskarsson og fararstjóri Gunnar Árnason. Aðalfræðsluferð sumarsins var jrriggja daga ferð að Hagavatni. Lagt var af stað kl. 9. föstudaginn 18. ágúst. Ekið var sem leið liggur austur Hellisheiði. Fyrst var stánzað við Kerið í Grímsnesi. Næst var hugað að fornskeljum í leir- bökkum við Brúará, skammt ofan .brúarinnar hjá Spóastöðum. Stanzað var við Gullfoss og jarðlög skoðuð, en sökum rigningar varð að hætta við göngu í I’jaxa. Náttstaður var valinn á grasfitjum við vaðið á Sandá. Var tjöldum slegið j>ar í úrhellisrigningu. Daginn eftir var hið fegursta veður. Var ekið að skálanum við Einifell og gengið Jjaðan upp með Farinu að Hagavatni og inn undir Hagafellsjökul eystri. Á leiðinni var litið á menjar um jökulrof og hærri vatnsstöðu. Síðdegis var gengið inn í gljúfrið neðan Leynifoss. Vestan göngu-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.