Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1969, Page 34

Náttúrufræðingurinn - 1969, Page 34
138 NÁTTÚ RUFRÆÐI NGURINN á dögum. Júlíus Cesar er sagður hafa notað þessa tækni í umsátinni um Alexandríu, og aðferðin mun hafa verið notuð af sjófarendum um langan aldur. Önnur aðferð til vinnslu á fersku vatni úr sjó er sú að frysta sjóinn, en ísinn, senr við það fæst, er saltlaus, og með því að bræða hann fæst ferskt vatn. Enda þótt minni orku þurfi til þess að frysta sjó en eima, þá eru flestar af þeim 200 stöðvum, sem vinna ferskt vatn úr sjó, byggðar á eimingu. Kostnaður- inn við eiminguna hefur farið mjög minnkandi síðustu árin, vegna endurbóta á aðferðinni. Með ódýrari orku má lækka þennan kostnað, og eru þá mestar vonir bundnar við kjarnorkuna. Áætlanir hafa verið gerðar um slíka stöð í Los Angeles, og er henni ætlað að framleiða 150 milljón gallona, þ. e. nær 570 þúsund tonn af fersku vatni á sólarhring. En hér kemur nýtt vandamál til sögunnar. í eimingarstöð af þessari stærð falla til hvorki meira né rninna en um 20 þús. tonn af salti á sólarhring, og hvað á að gera við allt þetta salt. Það er hér, eins og oft er sagt, að ein syndin býður annarri heim. Þegar maðurinn fer að grípa of mikið inn í rás hinna náttúrulegu viðburða, þá fer oft eitthvað úr jafnvægi. Hér var áður minnst á þýðingu vatnsins sem upplausnarefnis í lifandi frumum jurta og dýra og alls konar efna í jarðveginum, bæði lífrænna og ólífrænna. En vatnið er einnig á öðrum sviðum mjög mikilvægt fyrir rás viðburðanna hér á jörðu og grípur inn í líf og afkomu hvers manns. Er það fyrst og fremst veðurfarið með öllum þess margvíslegu tilbrigðum, annars vegar úrhellisrign- ingum með stórflóðum og öllu þeim tilheyrandi, og hins vegar langvarandi þurrkum með allri þeirri eyðileggingu, sem þeir hafa í för með sér fyrir akuryrkju og allan annan jarðargróður. í öðru lagi er það liið rennandi vatn, lækir og ár, smáar og stórar, sem snerta mjög samgöngurnar, bæði til hagræðis og óhagræðis, en eru auk þess undirstaða þeirrar orkuvinnslu, sem fer fram í hinum fjölmörgu vatnsaflstöðvum víðs vegar um heim. Hin látlausa hringrás vatnsins milli yfirborðs jarðar og andrúms- loftsins eru þeir mestu flutningar á efni, sem fram fara á jörðinni. Við skulum nú gera okkur grein fyrir, hversu miklir þessir flutn- ingar eru. Eins og áður var getið, þá er talið að allt vatn á jörðinni séu 1340 milljón rúmkílómetrar, en einn rúmkílómetri er ten- ingur, sem er einn kílómetri á hvern veg, og þar sem 1 rúmmetri af
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.