Náttúrufræðingurinn - 1969, Side 61
N ÁT T ÚRUF RÆÐINGURINN
165
„Fiskarnir" 1957. These species are as íollows: 1952—1956: Nesiarclnis nasutus
(1952), Xenodermichthys copei (1955), Argentina sphyraena (1955), Fierasfer
dentatus (1956); 1957—1967: Scyliorhynus caniculus (1966). Rhinochimaera atlan-
tica (1957), Sardina pilchardus (1966), Oncorhynchus gorbuscha (1960), Argyro-
pelecus gigas (1958), A. hemigymnus (1964), Halargyreus affinis (1963), Roccus
labrax (1967), Pomatomus tclescopus (1967), Pterycombus brama (1960, Pagellus
centrodontus (1961), Bythites n. sp. (1967) and Scophthalmus rhombus (1961).
Arnpór Garðarsson:
Ljóshöfðaönd (Anas americana) og rauðhöfðaönd (Anas pene-
lopc) eru náskyldar tegundir, sem skipta með sér norðurhveli jarðar.
Varpheimkynni rauðhöfðans eru í norðanverðri Evrópu og Asíu og
ná frá íslandi allt austur að Kyrrahafi. Austan Beringssunds tekur
ljóshöfðinn við, og eru varpstöðvar hans í vestanverðri Norður-
ameríku, frá Alaska suður til Norðurkaliforníu og Colorado, og
austur til Manitoba og Wisconsin. Á síðari árum hefur l]óshöfða-
önd numið land sem varpfugl hér og þar í austurhluta Kanada
(Godfrey 1966). Hvorug þessara andategunda verpur á Labrador,
Nýfundnalandi eða Grænlandi. Báðar tegundirnar eru að mestu
leyti farfuglar. Vetrarheimkynni rauðhöfðaandar eru í Vestur-
evrópu, kringum Miðjarðarhaf og í suðurhluta Asíu. Vetrarheim-
kynni íslenzkra rauðhöfðaanda eru að mestu leyti á Bretlandseyjum.
Slangur af rauðhöfðaöndum sést og á hverjum vetri í Norður-
ameríku bæði Kyrrahafs- og Atlantshafsmegin. Hafa merkingar
sýnt að sumt af þeim rauðhöfðum, sem vart verður á austurströnd
Ameríku, er af íslenzkum uppruna. Ljóshöfðaöndin hefur vetrar-
dvöl í Mexíkó og suðurhluta Bandaríkjanna. Ljóshöfðinn er auk
þess þekktur sem flækingur í Japan og á ýmsum smáeyjum í Kyrra-
hafi, svo og á Labrador, Nýfundnalandi, Grænlandi, Azoreyjum,
Bretlandseyjum, Frakklandi, Þýzkalandi og Hollandi, auk íslands.
Lífshættir og atferli þessara tveggja tegunda er afar líkt. Eru þær