Náttúrufræðingurinn - 1969, Blaðsíða 90
194
NÁTTÚRU FRÆÐINGURINN
JÓ7i Jónsson:
Vikurreki í Grindavík
Inngangur.
Varla mun það teljast til tíðinda, þótt vikur reki á land í Grinda-
vík eða annars staðar sunnan á Reykjanesskaga.
Stórárnar Hvítá og Þjórsá, einkum þó hin síðarneínda, fleyta ár-
lega fram miklu magni af vikri, sem án efa mestmegnis á rætur að
rekja til Heklu, og liin síðari ár hefur vikur frá Surtsey rekið víða
á land, og í hrönnum er hann víða sunnan á Reykjanesskaga, þar
á meðal í Grindavík.
Vikurrekinn 1940.
Sá vikurreki, sem hér verður gerður að umtalsefni, átti sér stað
fyrir mörgum árum, en því miður er nokkuð óvísst hvenær þetta
skeði, en líklegast að það hafi verið 1940.
Heimildarmaður minn um j^ennan atburð er ísleifur Jónsson,
verkfræðingur, yfirmaður Jarðborana ríkisins, en hann var ungling-
ur og átti heima í Grindavík, er þetta gerðist. Sömuleiðis hefur
Alexíus Lútersson gefið mér ýmsar upplýsingar varðandi þetta, og
báðir hafa þeir látið mér í té sýnishorn af vikrinum, auk þess að
hafa bent mér á staði þar sem hann væri að finna. Kann ég báðum
þakkir fyrir.
Það var á vorvertíðinni árið 1940 að vikurinn, sem hér um ræðir,
var á reki í hrönnum um allan sjó suður af Grindavík. Þó undarlegt
megi virðast, er svo að sjá sem eldri menn í Grindavík séu búnir
að gleyma þessu, enda hafa þeir að sjálfsögðu fremur hugað að
öðru á sjónum en vikri. Þeir, sem ungir voru, muna þetta aftur á
móti vel. Vikurinn sjálfur er öruggasta sönnunin fyrir því að um
staðreynd er að ræða. Vikurinn mun aðallega hafa verið þarna á reki
nokkra daga. Mest bar á grófum, svörtum vikurmolum og munu
molar allt að 40 cm í þvermál hafa verið innanum, en líka var