Náttúrufræðingurinn - 1976, Blaðsíða 6
108
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
Það þarf heldur engan að undra, að hann skuli ekki hafa fundist
fyrr. Yfirleitt eru það mosagrúskarar sem finna hann, enda líkist
hann miklu meira mosum (Mnium) en venjulegum burknum og
vex þar að auki að miklu leyti á kafi innan um mosa.
Jóhann Pálsson dró þetta vel og spámannlega saman, er við kom-
um við í Mýrdalnum á leið til Austurlands í júlíbyrjun síðastliðið
sumar. Barst þá talið að háplöntutegundum, sem hugsanlega ættu
eftir að finnast hérlendis. Jóhann sagði eittlivað á þá leið, að senni-
lega yxi Hymenophyllum wilsonii hér, en það væru aðeins mosa-
fræðingar, sem tækju eftir honum, svo nú væri komið til minna
kasta, og ef hann fyndist hér, þá væri liann í Mýrdalnum. Varð
þetta til þess, að þessa tegund bar nokkuð á góma næstu vikur. Við
komum í Deildarárgil í þessari ferð og leist mér þar gott mosaland.
Var ákveðið að safna þar í heimleiðinni, en það fórst þó fyrir.
Rúmum þrem vikum síðar átti ég leið næst þarna um og var þá á
heimleið úr söfnunarleiðangri með E. C. Wallace og Eiríki Jens-
syni. Bauðst þá tækifæri til mosasöfnunar í gilinu. Minna varð þó
úr þeirri söfnun en til stóð, bæði vegna mikillar rigningar og eins
að fyrsta mosasýnið, sem ég tók, reyndist ekki vera mosi við nánari
athugun, og gat vart annað verið en hinn margumtalaði Hymeno-
phyllum wilsonii. Við þetta hætti ég að mestu við frekari mosa-
tínslu, gilið var því ekki rannsakað nákvæmlega, en þó svipast um
eftir mosaburknanum í nágrenni við fundarstaðinn áður en sest var
að kaffidrykkju hjá Einari bónda á Skammadalshóli.
Vert væri að rannsaka gilið betur og eins að leita mosaburknans
víðar í ofanverðum Mýrdalnum. Allmikið hefur verið safnað af
mosum úti við sjóinn á Mýrdalssvæðinu, en efri hluti Mýrdalsins
hefur orðið útundan. Aftur á móti liefur talsverðu verið safnað á
þeim svæðum öðrum, þar sem helst kæmi til greina að leita að hon-
um, þ. e. a. s. Eyjafjallasvæðinu og Öræfunum. Tegund, sem vex
aðeins á einum smábletti, getur vissulega orðið fyrir ýmsum ófyrir-
sjáanlegum skakkaföllum; það væri því gleðiefni, ef mosaburkninn
fyndist víðar en á þessum eina stað. Vonandi fá þau eintök, sem
eftir eru í Deildarárgili, að vera þar í lriði. Eintök voru send til
Lystigarðsins á Akureyri í von um að takast mætti að halda þeim
lifandi þar, en Hymenophyllum er sagður mjög erfiður í ræktun
(Lawrence). Safneintök eru varðveitt á Náttúrufræðistofnun íslands.
Ég hef kosið að nefna Hymenophyllum ivilsonii mosaburkna á