Náttúrufræðingurinn - 1976, Blaðsíða 46
148
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
600—700 /r á breidd, með 15—16 vindingum, og allt
að 150 fj. hárri krónu. Gróið egglaga, svart, með 12—
14 listum. Oft með smáhnúðum á rætlunum (sbr.
latn. nafnið).
Mjög breytileg tegund, enda skipt niður í rnörg af-
brigði eða form, og sumir telja líka Ch. delicatula
sjálfstæða tegund, en samkvæmt Langangen (1972) er
hún talin samnefnd Ch. globularis, og afbrigðið f.
longibracteata algengast hér á landi.
Tegundin hefur fundist í nokkrum tjörnum og
vötnum, einkum um sunnan- og vestanvert landið, t. d.
virðist hún vera algeng í nágrenni Reykjavíkur. Á
Norðurlandi hefur hún aðeins fundist í Hólavatni í
Eyjafirði, en eintök af Chara, sem safnað var sumarið
1972 í Sandvatni og Kálfborgarvatni á Fljótsheiði í
S.-Þing. eru sennilega þessi tegund. Á Vestfjörðum
2- mynd. eða Austfjörðum hefur hún ekki fundist. Af jressu
Utlend virðist mega draga })á ályktun, að Ch. globularis sé
(,haui tegund. jremur sugræn j landinu. Hún hefur fundist í laugum
við Reykjavík, í allt að 25° C heitu vatni (Ostenfeld, 1899), og til eru
í söfnum eldgömul eintök, sem tekin eru í heitu vatni á íslandi.
Erlendis vex hún stundum í hálfsöltu vatni, allt að 6C/CC (Langangen,
1972), en hér er hún aðeins þekkt úr fersku vatni, þótt hún sé að
vísu stundum nálægt sjó. Hún vex yfirleitt aðeins á grunnu vatni,
sjaldan meira en 1—3 m.
Miðað við grannlönd okkar verður kransþörungaflóra íslands að
teljast mjög fábreytileg. Elafa t. d. fundist um 20 tegundir þeirra
í Noregi (Langangen, 1974) og um 25 í Danmörku. Ekki er gott að
segja, hver er ástæðan fyrir þessum fábreytifeik, en ef til vill er það
fyrst og fremst einangrun landsins. Gró kransþörunganna eru til-
tölulega stór, og hafa því engan möguleika til að berast hingað
nema með fuglum eða fyrir tilstilli mannsins. Það er athyglisvert.
að Nitella opaca og Chara globularis eru líka algengustu tegund-
irnar í Noregi og dreifðar um landið allt.
Þess var áður getið, að kransþörungar kjósa sér yfirleitt kalkrík
vötn, en hér á landi eru slík vötn naumast finnanleg. Tvær síðast-
nefndar tegundir finnast einnig í fremur kalksnauðum vötnum er-