Náttúrufræðingurinn - 1976, Blaðsíða 11
NÁTT URUFRÆÐINGURINN
113
lægð frá upptökum, getur sami skjálftinn fengið mismunandi stiga-
gjöf eftir því, hve langt frá upptökum stigin eru metin. Þessi kvarði
á því ekkert skylt við mat á stærð skjálftans eða orku lians, þótt
þessum hugtökum, áhrifum og stærð sé oftast ruglað saman í frétt-
um af skjálftum. Nú er almennt notaður áhrifakvarði Mercallis,
sem hér er prentaður í Viðauka 1. Sem dæmi um áhrifastig skjálfta
má taka áhrif skjálftans á Dalvík 1934, sem margir nruna. Hann
var mjög harður á Dalvík, af 74 húsum hrundu 18, en 33 skemmd-
ust svo, að þau urðu ekki íbúðarhæf. Eftir þessum áhrifum var
skjálftinn metinn VIII—IX stig á upptakasvæðinu. (Thorarinsson
1937). Á Húsavík þótti skjálftinn allsnarpur. Allir innanhúss og
margir utan dyra fundu skjálftann. Hlutir römbuðu og myndir
skekktust á veggjum. Þessi lýsing kemur heinr við V stig á kvarð-
anunr. Sunnanlands var skjálftinn mjög vægur og aðeins einstaka
maður varð hans var innanhúss. Slík áhrif eru metin aðeins II stig.
Þetta mat á áhrifum skjálftans er algerlega óháð jarðskjálftamæling-
unr líkt og veðurathuganamaður þarf ekki að mæla vindhraða til
að meta, hvort úti sé gola (3 vindstig), kaldi (5 vindstig) eða hvass-
viðri (8 vindstig). Öðru máli gegnir, ef mæla skal stærð skjálftans
og meta orku hans. Þá þarf jarðskjálftamæli og vitneskju um fjar-
lægð mælisins frá upptökum skjálftans. (Viðauki 2).
Stærð skjálfta er oftast mæld á svonefndum Richterskvarða. Hann
er kenndur við skjálftafræðinginn Charles F. Richter, sem bjó sér
til þennan kvarða til að bera saman skjálfta í heimalandi sínu í
Kaliforníu. Hann valdi staðlaðan jarðskjálftamæli og mældi útslag
skjálftans í 100 km fjarlægð frá upptökum. Skjálfti, sem var svo
lítill, að útslagið mældist aðeins 1 mm fékk stærðina 3. Skjálfti úr
sönni fjarlægð með tíu sinnum stærra útslag fékk stærðina 4 og
skjálfti með 100 sinnum stærra útslag stærðina 5. Þannig vex stærð-
in um 1 í hvert sinn, sem útslagið tífaldast. Ef skjálftinn er ekki í
100 km fjarlægð, verður að leiðrétta útslagið sem fjarlægð munar
(Richter 1935). Þessi kvarði hefur náð almennum vinsældum og er
nú notaður um allan heim til að bera saman skjálfta. Reynslan hef-
ur sýnt, að stærstu skjálftar ná rúmlega 8 stigum á Richterskvarða.
Útslag þeirra er 100 milljón sinnum stærra en útslag skjálfta með
stærð 0. Yfirleitt ber stöðvum nokkuð vel saman um stærð skjálfta,
þótt áhrilin séu eðlilega mismunandi eftir fjarlægð frá upptökum.
8