Náttúrufræðingurinn - 1976, Blaðsíða 51
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
153
Frakklands. íslenzku eintökin uxu öll á hafhrúðurkörlum (Balanus
crenatus), á u. þ. b. 2—3 m dýpi, fyrir utan Hálsnes í miðjum Hval-
firði. Á þessum stað er leirborinn stórgrýtisbotn. Eflaust er haf-
kyrjan enn sjaldgæf tegund við Island. I sæflóruleiðangri okkar í
kringum landið sumarið 1971 varð hvergi vart við hana. íslenzku
eintökin reyndust geld, þegar þau fundust, og verður því ekkert
sagt um æxlun tegundarinnar hér við land að svo stöddu. Hafkyrj-
an er einn þeirra sæþörunga, sem áreiðanlega má telja að hafi flutzt
til íslands á síðari árum. Erfitt er að segja til um, hvernig hún
hefur borizt til landsins. Hugsanlegt er þó, að þalbrot hafi borizt
með straumum erlendis frá eða með skipum, en skipakomur voru
einmitt tíðar í Hvalfjörð í síðustu heimsstyrjöld.
Athyglisvert er, að íslenzku eintökin virðast eingöngu vaxa á
kalkhúsum hrúðurkarla. Með hliðsjón af því og þeirri staðreynd,
að tegundin veldur usla á skelfiskmiðum erlendis, er full ástæða til
að fylgjast með frekari útbreiðslu hennar við íslandsstrendur í
framtíðinni.
Nánari grein er gerð fyrir þessum nýja þörungafundi í grasa-
fræðiritinu Nova Hedivigia, XVI, 1975.
S U M M A R Y
Codium fragile in lcelandic Waters
by
Sigurdur Jónsson and Karl Gunnarsson
The green algae Codium fragile is reported for the first time from the coast
of Iceland. It was found in Hvalfjördur at Soutliwest Iceland in April 1974.
The algae grows there as an epiphyte on the barnacle Balanus crenatus at a
depth of 2—3 m. The Icelandic specimens were all sterile.
The colonization of Codium fragile in the North Atlantic and the repro-
duction of the species are discussed.