Náttúrufræðingurinn - 1978, Blaðsíða 92
Merkileg fræðibók
í því mikla bókaflóði, sem vanalega
skellur yfir markaðinn rétt fyrir jólin, er
að jafnaði fátt um feita drætti. I>að vekur
því oftast ckki litla athygli, J>egar allt í
einu skýtur upp á yfirborðið merkilegri
fræðibók um náttúru landsins, á borð við
grundvallarritin í þeim fræðum.
Ég á hér við bókina BERGHLAUP
cftir Olaf Jónsson fyrrverandi ráðunaut á
Akureyri og framkvæmdastjóra Ræktun-
arfélags Norðurlands. í bókinni fjallar
höfundur um þau landslagsfyrirbæri, sem
oftast eru kölluð framhlaup, en hann
leggur til að hér eftir verði kölluð berg-
hlaup til aðgreiningar frá öðrum skriðu-
fyrirbærum. í örnefnum eru Jtessi fyrir-
bæri hins vegar oftast kennd við hraun
eða hóla, og má nefna Hraunshraun í
Öxnadal og Vatnsdals/ióía sem dærni um
það.
Reyndar telst Jjað ekki til nýjunga að
Olafur Jónsson riti um J>essi efni. Hann
hefur áður ritað mikla bók um Sltriðuföll
og snjóflóð, sem út kom árið 1957. Er
Jjar greint frá allmörgum berghlaupum
og rætt um orsakir Jicirra og eðli. A ]>eim
20 árum, sem síðan eru liðin, hefur Ólaf-
ur verið ójrreytandi að kynna sér fram-
lilaup og hefur í J>ví skyni ferðast um
alla landshluta og farið í gegnum flestar
heimildir, sem til greina koma í því efni.
M. a. hefur liann athugað loftmýndir af
öllu landinu, og eru ýmsar Jreirra birtar
í nýju bókinni. Það er Jní ómælt starf,
sem liggur að baki Jressu rúmlega 600
bls. vísindariti.
Bókin skiptist í tvo aðalhluta. í fyrri
hlutanum (90 bls.) er fjallað um berg-
hlaupin almennt, og er J>að raunar dálítil
berghlaupafreeði, sú eina sem rituð hefur
verið á íslensku eða um íslensk fyrirbæri
af þessu tagi, og gæti allt eins verið sjálf-
stæð bók, sem t. d. mætti nota sem
kennslubók í Jjessum fræðum. Ólafur ræð-
ir hér m. a. um orsakir berghlaupa, tefur
J>ær af ýmsum toga en forðast að setja
fram ákveðna kenningu. Hér eru margar
gátur óráðnar, eins og á fleiri sviðum ís-
lenskrar náttúrufræði.
i síðari hlutanum (um 500 bls.) er svo
hinum einstöku berghlaupum lýst, alls
um 225 lilaupum. Langflest Jreirra hefur
Ólafur sjálfur kannað og gert Jjverskurð-
arteikningar af Jreim og ljósmyndir, sem
fylgja flestum lýsingunum, en auk Jjess
eru birtar loftmyndir af nokkrum meiri
háttar framhlaupum. Segja ]>ær oft meira
en langar lýsingar.
1 mörgum dölum á íslandi eru frant-
hlaupin mjög áberandi lándslagsþáttur,
og nægir ]>ar að minna á Öxnadal eða
Langadal. Þau setja jafnan mikinn svip
á landslagið, og auka stórum fjölbreytni
|)ess, enda eru þau sjálf á stundum hrein-
ustu völundarhús. Verndun Jjeirra fyrir
livers konar raski er Jjví frumjsáttur lands-
lagsverndar.
Með bók Ólafs í höndum verður skoð-
un berghlaupanna að ævintýri, ógleyman-
legu hverjum sem ]>að reynir. Berghlaup-
in eru í senn, að ]>ví er flestum virðist,
ntjög auðskilin fyrirbæri, en jafnframt þó
full af ráðgátum, sent verða stundum því
fleiri, sem betur er skoðað. Við sumum
gátunum á Ólafur svar, en aðrar lætur
hann síðari tima athugendum eftir að
leysa.
Hafi Ólafur Jónsson ekki verið búinn
að tryggja sér sess meðal merkustu nátt-
úrufræðinga landsins fyrir fyrri bækur
86