Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1989, Side 39

Náttúrufræðingurinn - 1989, Side 39
Kristján Geirsson Fallgígar INNGANGUR Fallgígar (Pit craters) voru fyrst skilgreindir til aðgreiningar frá sprengigígum í rannsóknarleiðangri Charles Wilkes til Hawaii árið 1840 (Macdonald 1972). Fallgígar eru kringlótt eða ílöng op í hraunhellu sumra dyngja. Stærð opanna er mis- jöfn, frá örfáum metrum upp í kíló- metra í þvermál (Macdonald 1972). Dýptin hefur mælst allt að 300 m (Macdonald og Abbott 1970). Veggir fallgíga eru oftast nærri lóðréttir og í þeim má vel sjá hin þunnu hraunlög dyngjanna. Botninn er oftast hulinn foksandi, seinni tíma hraunum eða stórgrýti sem hrunið hefur úr börmun- um (Macdonald 1972). Lítil eða engin ummerki um gígana sjást á yfirborði fyrr en komið er að brún þeirra (1. mynd). MYNDUN FALLGÍGA Dyngjugos eru flæðigos þar sem heit kvikan rennur langar leiðir í lok- uðum rásum og kemur ekki fram nema við jaðra hraunstraumanna. Gjóskumyndun í slíkum gosum er lítil sem engin (Sigurður Fórarinsson 1981). Þegar líða tekur á gosið getur myndast hrauntjörn í gíg dyngjunnar þar sem kvikan dvelur í lengri eða skemmri tíma. Með tímanum storknar yfirborð slíkra hrauntjarna og þykkn- ar skorpan eftir því sem kólnun og storknun eykst. Ef kvikan streymir burt undan þakinu hrynur það niður. Svipað á sér stað ef hraunrásir tæmast og styrkur þaksins er ekki nægur til að halda því uppi. Flestir fallgígar á Hawaii myndast í sambandi við kviku- hlaup þegar kvikan bræðir sig upp í gamla skorpu sem síðan hrynur niður að hluta (Macdonald og Abbott 1970, Macdonald 1972). Ýmsar ástæður geta verið fyrir því að kvika streymir burt undan þunnri skorpunni. Helstar eru: 1) í lok gossins sígur kvikan niður í aðfærsluæðina. Eldfjallið gleypir aftur eigin afurð. 2) Kvika fær útrennsli neðar í dyngj- unni og hrauntjörnin og/eða hraunrásir tæmast. 3) Hraunrennsli hættir og hraunrásir tæmast. (Macdonald og Abbott 1970, Macdonald 1972) Menn hafa einu sinni verið vitni að myndun fallgígs. Það var í gosi árið 1955 í risadyngjunni Kilauea á Haw- aii. Heyrðist dauf sprenging og um 150 m hátt öskuský reis upp og dreifði fínni ösku um næsta nágrenni. Eftir var um 20-30 m djúp hola, 8 m í þver- mál efst en víkkaði eftir því sem neðar dró. Barmar fallgígsins urðu fljótlega lóðréttir vegna hruns (Macdonald og Abbott 1970). Rúmmál öskunnar sem dreifðist í kring um gíginn reyndist vera innan við 1% af rúmmáli gígsins. Náttúrufræöingurinn 59 (2), bls. 93-102, 1989. 93

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.