Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1990, Qupperneq 3

Náttúrufræðingurinn - 1990, Qupperneq 3
Helgi Björnsson Hofsjökull: landslag, ísforði og vatnasvæði INNGANGUR Allan næstliðinn áratug hafa Raun- vísindastofnun Háskólans og Lands- virkjun unnið saman að gerð korta af jöklum landsins í þeim tilgangi að meta ísforða þeirra, greina aðrennslis- svæði íss og vatns að fallvötnum, kanna áður óþekkt land undir jöklun- um og leggja grundvöll að frekari jöklarannsóknum (Helgi Björnsson, 1988). Kortagerð af jöklunum nýtist virkjunaraðilum, vegagerð og al- mannavörnum og er um leið mikil- vægur þáttur í rannsókn á náttúru landsins. Jöklarnir hylja óþekkt land- svæði, dali, fjallshryggi, virk eldfjöll, jarðhitasvæði og jökullón. Þeir veita stöðugt vatni í grunnvatnsstrauma og vatnsmestu ár landsins. Jökulvatn, sem safnað er í miðlunarlón, er verulegur hluti virkjanlegs fallvatns á íslandi. í þessari grein er sagt frá niður- stöðum mælinga á Hofsjökli, sem unnar voru árið 1983. Mælingarnar voru liður í vatnafræðirannsóknum við jöklulárnar, sem eiga upptök í Hofsjökli, en þær eru Þjórsá að austan og sunnan, Jökulfall sem fellur í Hvítá, Blanda að vestan og Jökulsár tvær að norðan, sem falla í Skaga- fjörð. Gerð voru kort af yfirborði, botni og ísþykkt, aðrennslissvæði íss og vatns að fallvötnunum voru af- mörkuð, svo og einstakir skriðjöklar. GERÐJÖKLAKORTA Hofsjökull er 923 km2 að flatarmáli, tæplega 1% af íslandi og þriðji stærsti jökull landsins, næstur á eftir Vatna- jökli og Langjökli. Fram á áttunda áratuginn var Hofsjökull fáfarnastur stóru jöklanna og minnst kannaður. Leiðir lágu fram hjá honum, yfir Sprengisand að austan og Kjalveg að vestan. Nú er hins vegar land undir honum betur kannað en á nokkrum öðrum jökli hér á landi og niðurstöður birtar á kortum. Mœlitœkni Kort af yfirborði og botni jökla eru unnin úr gögnum um landhæð og ís- þykkt. Hæð á yfirborði var fundin með nákvæmum mælingum á loft- þyngd og staðsetning mælitækjanna skráð með loran-leiðsögutækni. Þykkt jökulsins var fundin með því að mæla tímann, sem það tekur rafsegulbylgju að berast með þekktum hraða niður á botn og til baka upp á yfirborð. Mæli- tækin eru dregin af snjóbíl eftir jöklin- um og jökulþykktin skráð samfellt á ljósmyndafilmu. Með því að aka fjöl- margar mælilínur á jöklinum er síðan unnt að teikna kort af yfirborði og botni jöklanna. Fyrst eru bil milli mælilínanna brúuð með því að reikna þar fleti, sem best falla að gildum á mælilínunum. Þannig fæst fram staf- Náttúrufræðingurinn 60 (3), bls. 113-126, 1991. 113

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.