Náttúrufræðingurinn - 1990, Page 20
3. mynd. Hlutþrýstingur ósons yfir suðurheimskautinu í ágúst og október 1986, sem
sýnir eyðingu eða minnkun ósons í heiðhvolfi að vorlagi (október). mb stendur fyrir
millibar (einn þúsundasti úr bari). nb stendur fyrir nanóbar (einn milljónasti úr milli-
bar). Ozone profiles in Antarctica showing the striking decrease of lower stratospheric
ozone in springtime (Hofmann & félagar 1987).
því er hámarksstyrkur ósons á þeim
slóðum.
Eins og að ofan greinir rofna súr-
efnissameindir við gleypni útfjólu-
blárrar geislunar í efri lögum gufu-
hvolfsins. Þetta gerist fyrir áhrif út-
fjólublárra geisla á fjærútfjólubláa
litrófssviðinu, fyrir bylgjulengdir á bil-
inu 100-200 nm (Mc Ewans & Phillips
1975). Þannig virkar súrefnið sem
mikilvægur skermur öllu lífríki á jörð-
inni fyrir skaðlegum áhrifum útfjólu-
blárrar geislunar af hárri tíðni. Ef
ósons nyti ekki við í andrúmsloftinu
næði útfjólublá geislun á nærútfjólu-
bláa litrófssviðinu, sem væri skaðleg
h'fríkinu, til jarðar. Líkt og gerist með
súrefni rofna ósonsameindir við
gleypni rafsegulbylgjugeislunar á
bylgjulengdarbilinu 200-300 nm (sjá
4. mynd).
03 + hv —» Oz + O (3)
(hv = ljóseind með bylgjulengd
ca. 200-300 nm)
O, getur því næst endurmyndast sam-
kvæmt efnajöfnu (1) hér að ofan.
Oson getur hvarfast við súrefnis-
130