Náttúrufræðingurinn - 1990, Qupperneq 28
2. mynd. Fjögurra ára gamall
karlfálki (17641). Þessi fugl er
óvenjuljós af íslenskum fálka að
vera. A four year old Gyrfalcon
male. This is a very light hird
compared with other Icelandic
Gyrfalcons. Ljósm. photo OKN
1987.
iew (1960) heldur því fram, án þess þó
að gefa neitt ákveðið dæmi, að fálkar
verði kynþroska eins árs. í haldi hafa
fálkar, bæði karlfuglar og kvenfuglar,
byrjað að verpa fjögurra ára (Platt
1977). Mikill litarmunur er á fullorðn-
um fálkum, sumir eru dökkir aðrir
ljósir (5. mynd).
Karlfuglarnir tveir voru 14 og 25 km
frá sínum æskuóðulum og kvenfugl-
arnir 53 og 84 km. Það á almennt við
um ránfugla að kvenfuglar verða fyrr
kynþroska og dreifast víðar en karl-
fuglar (Newton 1979).
Átthagatryggð varpfugla
Fimm kvenfuglar, sem hafa náðst
oftar en einu sinni, hafa allir verið á
sama óðali, þó svo sumir hafi notað
mismunandi hreiðurstæði. Fjórir
kvenfuglar urpu öll árin, sem vitað
var um þá á óðulum, en einn var geld-
ur í tvö ár (Tafla 1).
Fjarlægð á milli hreiðra á sama óð-
ali getur verið allmikil, þannig flutti
kvenfugl (113489) 3,7 km 1987-88 og
annar kvenfugl (110164) flakkaði á
milli nokkurra hreiðurstæða og 5,9
km voru á milli þeirra sem fjærst voru
(6. mynd). Aftur á móti var einn
kvenfugl (110118) alltaf í sama hreiðri.
Vitað var um tvo fullorðna kven-
fugla sem hurfu. Annar fuglinn,
merktur 1983 (112528), fannst löngu
dauður í júlí 1985, 2 km frá hreiðrinu.
Hinn fuglinn (112525) var tveggja ára
138