Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1990, Side 34

Náttúrufræðingurinn - 1990, Side 34
HIKKORÍA FRÁ TRÖLLATUNGU Árið 1957 lýsti Jóhannes Áskelsson í Náttúrufræðingnum blaðbroti af hikkor- íu (Carya) úr tertíerum setlögum í Þórishlíðarfjalli í Selárdal í Arnarfirði. Aldur þessara setlaga er 14-15 milljónir ára og plöntuleifarnar í þeim tilheyra elsta gróðursamfélagi, sem fundist hefur í íslenskum jarðlögum. Svo virðist sem hikkoríublöð hafi ekki fundist annars staðar hér á landi þó að frjókorna hafi verið getið úr Surtarbrandsgili hjá Brjánslæk, frá Tröllatungu og öðrum fundar- stöðum tertíerplantna við Steingrímsfjörð og frá Hreðavatni. Fyrir nokkrum árum skoðaði Walter L. Friedrich jarðfræðingur plöntu- steingervinga í Ríkissafninu í Stokkhólmi og var þá bent á kassa, sem voru merktir „Grönland Expedition 1883“. Þegar hann opnaði kassana komu í ljós plöntusteingervingar ásamt berg- og steinasýnum frá Vestfjörðum. Finnandi var tilnefndur Svíinn Gust. Fiink, en hann skrifaði nokkrar greinar um jarð- fræði íslands, einkum steinafræði. Líklega hefur þessi „Grænlandsleiðangur“ ekki komist til Grænlands sumarið 1883, því svo virðist sem þeir hafi verið mestallt sumarið við jarðfræðiathuganir á Vestfjörðum. Meðal plöntusteingervinga úr kössum Grænlandsleiðangursins 1883 er sá sem sýndur er á meðfylgjandi mynd, en hann fannst við Tröllatungu í Steingríms- firði. Hér er um að ræða blaðbrot í ljósgráum siltsteini, 9,5 cm langt og 5,5 cm breitt, en efsta hluta blaðsins vantar. Blaðið er aflangt með nær samsíða hliðar um miðjuna og mjókkar í mjúkum boga í báða enda. Blaðrendurnar eru ofurlít- ið aðdregnar við grunninn og alsettar hvössum smátönnum. Stór meginstrengur liggur eftir endilangri blaðmiðjunni og frá honum liggja boglægir hliðarstrengir út í blaðröndina. Við samanburð á þessu blaðbroti og blöðum valhnotutrés ('Juglans) og hikkoríu virðist vera betra samræmi við hikkoríublöðin. Þessi greining styrkir þá niðurstöðu frjógreiningar að hikkoría hafi ennþá vaxið hér fyrir 10 milljónum ára og fyrst horfið úr íslenskum gróðursamfélögum eftir að setlögin við Tröllatungu mynduðust. Ljósm. Walter L. Friedrich. Leifur A. Símonarson Náttúrufræðingurinn 60 (3), bls. 144, 1991. 144

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.