Náttúrufræðingurinn - 1990, Side 51
Jón Jónsson
Dvergasteinar
INNGANGUR
Kveikjan að þessu greinarkorni er
samtal við nágranna minn Einar Vil-
hjálmsson og síðar grein eftir hann,
sem birt var á sínum tíma í Þjóðviljan-
um ásamt mynd, sem hér birtist með
leyfi Einars. Sjaldgæft mun það að
bær taki nafn af einum steini, en svo
virðist þó vera um kirkjustaðinn
forna, Dvergastein í Seyðisfirði.
ÞJÓÐSÖGNIN
Sögn hermir að kirkja hafi forðum
verið sunnan fjarðar nálægt Sörlastöð-
um, en verið flutt þaðan norður yfir
að Dvergasteini, þar sem hún var svo
öldum saman. Skammt þar frá er
steinninn, sem myndin er af (1. mynd)
og heitir þessu nafni. Sögnin hermir
ennfremur, að í honum búi dvergar,
en þeir voru taldir afburða smiðir og
því eru slíkir menn sagðir dverghagir.
Dvergar þessir voru, svo hermir sag-
an, góðir og vel kristnir, vildu ekki
una kirkjuleysinu né heldur nábýli við
þá af sínum kynstofni, sem héldu fast
við sína fornu trú, og því var það að
til þeirra sást er þeir komu siglandi
sínum steini norður yfir fjörð, lenda
honum og setja upp ekki fjarri kirkj-
unni, þar sem hann stendur enn í dag.
(Eftir grein Einars Vilhjálmssonar og
Þjóðsögum Sigfúsar Sigfússonar
(1982)).
D VERG ASTEIN AR
Steina með fleti sem veðrast hafa á
þennan hátt er víða að finna og fyrir-
bærið vel þekkt (sjá Glossary of Geo-
logy 1980). Slíkar myndanir koma fyr-
ir víðs vegar allt frá ströndum íslands
og háfjöllum til saltvatna Afríku.
Sjálfur veitti ég þessu athygli á grá-
grýtishellum á fjörukambi í Blikalóns-
ey á Sléttu, líklega 1956, en síðar víða.
A sunnanverðum Reykjanesskaga, frá
Staðarmölum að Háleyjarbungu, grúir
af þessu bæði í föstu bergi og á lausum
steinum. Myndun þessa mun ég fram-
vegis nefna dvergasteina, hvort sem
aðrir kunna að fylgja eftir í því eða
ekki. Sérheiti á þessu er hvort sem er
mér ekki kunnugt.
Þessi veðrun verður þar sem salt
vatn smýgur inn í fínar holur í frauð-
kenndu bergi svo sem t.d. grágrýti.
Þar kristallast saltið út og sprengir um
leið út frá sér. Þéttari lög í berginu,
oftast mjög óregluleg, taka ekki til sín
vatn og standa því eftir sem hryggir.
Sama hlutverki sem saltið gegnir vatn-
ið þar sem það nær að frjósa. Af þessu
er eðlilegt að dvergasteinar séu meira
áberandi við sjávarsíðuna, þar sem
seltan er ávallt fyrir hendi árið um
kring, en frostverkan að jafnaði ekki
nema nokkurn hluta árs.
Náttúrufræðingurinn 60 (3), bls. 161-162, 1991.
161