Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1990, Page 55

Náttúrufræðingurinn - 1990, Page 55
sjánni hve langt er niður á jökul- botninn. Þar með fæst einnig kort af undirlaginu þegar jökulþykktin er dregin frá yfirborðskortinu. í þriðja lagi er reiknað út hvert jöklarnir hníga og hvernig vatn rennur undir þeim, annars vegar að ám við jökuljaðar og hins vegar inn að dældum og lónum í jöklinum, sem myndast við jarðhita- svæði. Dæmi eru tekin um hvernig kortin nýtast við mat á ákomu og leys- ingu á Tungnaárjökli og einnig metið, hvort hann hreyfist nægilega hratt til að bera fram það sem safnast á hann ofanverðan. í fjórða lagi eru settar fram kenningar um jökulhlaup og tengsl jarðhita og eldgosa við bráðnun jöklanna. Með bókinni fylgir 21 kort í sér- stakri möppu. Þar er að finna drjúgan hluta af jreim mælingum, sem um er fjallað og þær settar fram með marg- víslegum hætti. Hér er um að ræða kort af stórum hluta af vestanverðum Vatnajökli auk Eyjabakkajökuls og Hofsjökuls. Þar eru yfirlitskort með mælilínum, þá kort í litum af yfir- borði, botni og þykkt jöklanna. Kort, svört á hvítu, eru af ísaskilum og straumlínum, vatnaskilum undir jökli (kortið af vestanverðum Vatnajökli í litum) og svokölluðum mættislínum, sem sýna hvernig vatn rennur undir jöklinum samkvæmt niðurstöðum mælinganna. Út frá þeim eru dregin vatnaskil undir jöklinum. Þar kemur og berlega í ljós, að vatnaskil undir jökli standast alls ekki alltaf á við ísa- skil á jökli. Landakort eru núorðið venjulega teiknuð eftir loftljósmyndum í þrí- vídd. Ljósmyndir eru þeim eiginleik- um gæddar, að þar sjást stórir fletir í sjónhendingu, og hægt er að hyggja nánar að hverjum stað á myndinni að vild. Þannig má nota myndirnar til að tengja þá staði, sem liggja jafn hátt yf- ir sjó, með línu að því tilskyldu að nokkrir auðþekkjanlegir staðir á myndinni séu nákvæmlega mældir. Þannig fást hæðarlínur á korti. Það kann að virðast vandalítið að kort- leggja jökla með þessum hætti, en sá hængur er á, að hveljöklar eru að stórum hluta alhvítir og illmögulegt að greina þar einn stað frá öðrum á mynd. Þess vegna eru íslenskir hvel- jöklar á landakortum ekki með réttum hæðarlínum, heldur eru þær einungis misjafnlega góðar ágiskanir eftir því hvérnig jökullinn sýnist vera. Allar mælingar á þessum jöklum út frá hæð- arlínum á hefðbundnum landakortum eru því marklitlar. Kort þau, sem fylgja bókinni, eru fyrstu og einu eiginlegu landslagskort- in, sem fram hafa komið af Hofsjökli og stórum hluta Vatnajökuls. Þau eru unnin úr mælingum á loftþyngd við yf- irborð jökulsins á mælilínum, þar sem lengd og breidd er einnig mæld. Þeir staðir á línunum, sem jafnhátt liggja, eru síðan tengdir saman með línum eftir ákveðnum aðferðum og eru þar komnar hæðarlínur samsvarandi þeim, sem lýst var hér að ofan. Svip- aðs eðlis eru dýptarkort af sjó og vötnum, sem gerð eru út frá línum eða punktum, sem lóðað hefur verið á. Þessi kort eru að sjálfsögðu aldrei jafn nákvæm og kort eftir loftmynd- um, því ekki er hægt að segja með vissu hver hæðin er milli mælilína. Þó er óhætt að segja, að skekkjan verður ekki mjög mikil, því á yfirborði jök- ulsins er víðast tiltölulega lítið um miklar hallabreytingar. Undirlag jöklanna er okkur ekki með öllu hulið, þótt við höfum ekki önnur tæki en augun ber til að skoða þá. Víðast endurspeglar yfirborðið að einhverju leyti það sem undir er eins og lítt gagnsæ hula hafi verið lögð þar yfir. Það má ljóst vera, að Skeiðarár- 165

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.