Samvinnan - 01.06.1969, Síða 10

Samvinnan - 01.06.1969, Síða 10
Flokksræðið hefur mjög verið til umræðu manna á meðal undanfarið ár, þó litið hafi farið fyrir slíkum umræðum opinberlega, enda er hér um að ræða eitt af „viðkvæmu málunum“, sem opinberir fjölmiðlar mega ekki hreyfa við og þaðan af síður sjálf málgögn flokkanna. Það er því einkar vel viðeigandi á þessum timamótum í stjórnmálasögu landsins að taka málið til athugunar frá nokkrum hliðum, reyna að gera sér grein fyrir hvernig flokksræðinu hérlendis er háttað, á hvaða grunni það hvilir og hvernig því er beitt. Slík athugun stingur að visu f stúf við há- stemmdan hátiðaræðuflauminn, sem dynur á þjóðinni við öll sllk tæki- færi, en ætti að verða þeim mun gagnlegri sem hún er nær daglegum veruleik og fjær lofræðulygunum. I greinaflokkinn vantar þvi miður grein um sjálfa gerð og starfshætti fslenzka flokkakerfisins, sem Sig- urður Líndai hæstaréttarritari hafði dregizt á að skrlfa, en fékk ekki lokið í tæka tið. Hinsvegar heldur hann áfram að vinna að henni, og er afráðið að hún birtist i 5. hefti Samvinnunnar í október. Um meðfylgjandi greinar þarf varla að fjölyrða. Þær fjalla hver um sinn tiltekna þátt flokksræðlsins, að visu með smávægilegum endur- tekningum einstakra atriða sem erfitt er að girða fyrir, og ættu að gefa allskýra mynd af fyrirbærinu, þó lýslngin sé langtifrá tæmandi. Eitt af þvl sem fróðlegt væri að gera, þegar málaflokkar sem þessi eru teknir fyrir, væri að kanna afmörkuð svið ofanf kjölinn, athuga til dæmis vinnubrögð útvarpsráðs eða úthlutunarnefndar listamannafjár (sem hvorttveggja eru hrelnpólitiskar oplnberar nefndlr) eða kanna opinberar fjárveitingar tll atvinnugreina og einstakra fyrirtækja (elnsog til dæmls Álafoss eða Kfsiliðjunnar) um tilteklnn tlma. Það sem hamlar sllkri könnun er einkum tvennt, annarsvegar fjárskortur og mannekla tímaritsins, hinsvegar — og það er vltaskuld afdrifarikara — vand- kvæðin við að fá aðgang að nauðsynlegum gögnum. Fá eða engin lýðræðisþjóðfélög munu vera jafnharðlæst og það Islenzka, þegar afla þarf upplýsinga um „viðkvæm mál', og kom það meðal annars berlega fram þegar Samvinnan fjallaði um Þlngvallahneykslið haustið 1967. Einsog einn höfundanna hér á eftir bendir á, eiga sagnfræðingar fram- tiðarinnar, sem kanna vilja stjórnmálasögu fyrrl hluta 20. aldar á Islandi, eftir að lenda I miklum kröggum áður en yflr lýkur. Kannski er einn ömurlegasti fylgifiskur Islenzka flokksræðlsins sú gegndarlausa sóun á mönnum, mannvltl, sérþekkingu og fjármunum, sem það leiðir af sér. Vltanlega er það fyrir löngu lýðum Ijóst, að I þessu þjóðfélagl eru þelr menn elnlr Ifklegir til metorða og opinberra áhrifa, sem ekkl láta glepjast af andlegu sjálfstæði, áræði, frumleik eða skýrrl hugsun: Það eru með öðrum orðum Já-mennlrnir, sem dansa á flokkslfnunum, er ráða þjóðfélaginu og ráðskast þar með alla hluti, jafnt fjármál sem menningarmál, atvinnumál sem skólamál, vlsindi sem trúmál — yfirleitt allt sem til þess er fallið að efla og viðhalda alræði hins pólitfska valds. Þessi samdráttur valdsins á hendur fárra og einatt hæfileikasnauðra manna leiðir ekki einungis af sér óhæfilega einhæfni og gerræði, held- ur veldur hann einnig því, að margir bezt menntuðu, hæfustu og hug- myndaríkustu þegnar þjóðfélagsins verða meira og minna óvirkir, nýtast alls ekki einsog efni standa til, afþvi þeir standa utanvið kerfið og neita að ánetjast því. Þessir menn eiga I rauninni einungis tveggja kosta völ: að hverfa úr landi og láta öðrum þjóðum i té hæfileika sína, þekkingu og sérhæfni — það gera ákáflega marglr — eða ein- angra sig við eitthvert afmarkað verkefni I von um að verða þó til ein- hvers gagns á því litla sviði. Gildur þáttur ( megnrl óánægju yngri kynslóða með flokksræðið er einmitt sá, að unga fólkið gerir sér grein fyrir sóuninni, sem af þvi hlýzt, og horfir framá eigin einangrun I þjóðfélagi sem er pottþétt og hljóðhelt, þannig að engar hræringar, engar hugmyndir, ekkert frum- kvæði fær þrifizt nema það finni náð fyrir augum skammsýnna flokks- foringja og litilsigldra já-manna þeirra. Nýjustu dæmin um sóunlna og hina algeru fyrirlitningu á sérhæfni og menntun eru veitingar mennta- málaráðherra á embættum bókafulltrúa rlkisins og forstöðumanns fræðslumyndasafns rlkisins, þar sem pólitlskir bitlingamenn voru teknir framyfir sérmenntaða fagmenn — og það af ráðherra sem á yngri árum fór óvægnum orðum um pólitískar embættaveitingar! Islenzkir stjórnmálamenn hafa kvartað undan þvl uppá slðkastið, að þeim sé kennt um allt sem aflaga fer i þjóðfélaginu. Vitaskuld er fjar- stætt að skella allri skuld á þá — þjóðin öll ber sinn hluta af ábyrgð- inni og hefur raunar kjörið þá menn til forustu sem nú eru að verða mosavaxnir I valdastólunum. Hitt er samt rétt að hafa I huga, að þannig hefur verið búið um hnútana I þjóðfélaginu með samábyrgðar- fyrirkomulagi stjórnmálaflokkanna, sem ráða öllum fjölmiðlum I land- inu, að þjóðin á fárra kosta völ annarra en hjakka I sama farinu ára- tug eftir áratug, meðan gengi innlends framtaks og innlends gjaldmiðils hrlðfellur. fslenzka þjóðln kom útúr síðasta heimsstriði með fullar hendur fjár á sama tlma og margar þjóðir I Evrópu sleiktu sár sln allslausar; hún hlaut styrki og lán á borð við þær þjóðir sem verst höfðu orðið útl I styrjðldinni; hún áttl að fagna mörgum fengsælum árum, glfurlegri aukningu afkasta og aflamagns, mjög góðu heims- markaðsverði um árabll; hún varði ekki grænum eyri til hervarna, en hafði svokallaðar varnir landsins að féþúfu. Samt stendur þessl þjóð uppi með gjaldmiðil sem I ár hefur elnungls 7,4% af þvl verðgildi sem hann háfði fyrir réttum 20 árum. Er ekki eitthvað boglð við stjórnkerfi og stjórnmálaforustu sem lætur sllka þróun viðgangast? Þjóðin er eyðslusöm og ósýnt um alla forsjálni, satt er það, en hvar voru for- sjármenn hennar, leiðtogarnir sem hafa áttu vit fyrir henni og leiða hana? Voru þeir kannski of önnum kafnlr við að treysta Kerfið, renna nýjum stoðum undir völd sln og efnalegan viðgang? Við þvilíkum spurn- ingum fást engin óyggjandi svör, en þær halda áfram að knýja á, og ekki ófyrirsynju. s-a-m

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.