Samvinnan - 01.06.1969, Qupperneq 50
■KSrH samvinna
t
Hjalti Pálsson:
ER ÍSLAND OF STÓRT?
Alkunna er, hversu gífurleg
mannfjölgun hefur orðið í
Reykjavík og nágrenni síðustu
áratugina. Ljósasta dæmið um
þetta er Kópavogur. í æsku
þeii'ra manna, sem nú eru á miðj-
um aldri, voru þar einungis örfá
býli, en nú er þar næst fjöl-
mennasta bæjarfélag á landinu.
Á sama tíma hefur byggð aukizt
mikið á Seltjarnarnesi, í Garða-
hreppi og Mosfellssveit, og íbú-
um Hafnarfjarðar, Keflavíkur og
Sandgerðis stórfjölgað. Á síðustu
fjörutíu árum hefur svo íbúatala
sjálfrar Reykjavíkurborgar meira
en þrefaldazt og búa nú lang-
drægt tveir þriðju hlutar þjóð-
arinnar á svæði sem takmarkast
að norðan af Leirvogsá en af
Miðnesheiði að sunnan.
Ef til vill láta sumir sér detta
í hug, að ísland sé óþarflega
stórt fyrir okkur og að ódýrara
sé að búa aðeins á hluta landsins,
t. d. suðvesturhorni þess.
Því fer fjarri, að lát sé á að-
flutningum á þetta svæði. Fræði-
menn telja að árið 1980 muni ís-
lendingar ná 260 þúsundum, og
að dómi þeirra mun aukningin
öll, eða því nær öll, lenda á
Reykjavíkursvæðinu og í Eyja-
fjarðarsýslu að einhverju leyti.
Jafnframt er því spáð, að fólki
muni fækka í mörgum héruðum
frá því sem nú er. Nú er hins-
vegar þegar orðið svo fámennt í
sumum byggðarlögum, að land-
auðn mun hljótast af meiri blóð-
töku. En það hefði aftur óhjá-
kvæmilega í för með sér, að hag-
ur nágrannasveita hallaðist, svo
að lokum yrði þar ekki rönd
reist við útsoginu. Áður en langt
um liði yrðu örlög þeirra einnig
ráðin og um það eitt að tefla, hve
lengi síðustu íbúarnir þraukuðu.
Mörgum óar við slíkri fram-
vindu, en öðrum er hún tilfinn-
ingamál. Þó væri skylt að sætta
sig við hana, sem hver önnur
umbrot á breytingatímum, ef við
gætum gert okkur rökstuddar
vonir um, að hún væri vegur til
aukinnar hagsældar og hefði
ekki þá agnúa, sem háskalegir
geta orðið. En ekki þarf lengi
að velta þessu fyrir sér til þess
að koma auga á, að slíkir fólks-
flutningar eru mjög viðsjárverð-
ir og harla kostnaðarsamir.
Flestir þeir, sem vilja um
þetta hugsa af alvöru og rökvísi,
munu á einu máli um það, að
ískyggilegt sé, ef stórir lands-
hlutar fara í auðn. Því fylgir
margvíslegt misræmi og fjöl-
margir örðugleikar, tortíming
landsnytja og mjög auknir erf-
iðleikar fyrir þá sem á mörk-
unum búa.
Sumir telja að þjóðin geti
seinna byggt eydd héruð, þegar
henni vex fiskur um hrygg að
mannfjölda og fjárhagsgetu. Þess
ber þó að minnast, að meira þarf
til þess að nema land og reisa
byggð en halda velli á þeim stöð-
um þar sem fólk hefur búið til
langframa og mikið á sig lagt
til þess að þar mætti vera manna-
byggð. Öll mannvirki verða á
skömmum tíma að ömurlegum
rústum, ef enginn hirðir um þau,
og eydd sveit eða yfirgefið þorp
verður ekki fýsilegt til aðseturs
á ný, nema svo til allt verði reist
frá grunni. Óséð er líka til hvaða
erfiðleika og landspjalla það
gæti leitt, ef mannabyggð félli
niður á stórum landsvæðum.
Á fleira er að líta. Sumum
finnst kannski, að það gerist
þegjandi og hljóðalaust, er fjöl-
mennt byggðarlag fer í auðn.
Eiginlega þurfi enginn neinu að
fórna nema þeir, sem ganga
verða frá húsum sínum og lend-
um verðlausum, enda hreppi þeir
í staðinn vonina um betri fram-
tíð annars staðar, því ella hefðu
þeir ekki tekið sig upp. En það
er öðru nær. Mikilli tilfærslu á
byggð fylgir gífurlegur kostnað-
ur fyrir alla þjóðina. Hún
færir stórfórnir vegna slíkrar
tilfærslu. Byggingarkostnaður
vegna hverra fimm manna, sem
flytjast í nýtt byggðarlag, þar
sem húsnæði er ónógt, nemur
sennilega sem næst einni miljón
króna. En þó er ekki hálfsögð
sagan, því að steinninn, sem velt-
ur af stað, dregur heiia skriðu
á eftir sér. Miklu meira kosta
lóðir, götur, lagnir margskonar,
skólar, kirkjur og þjónustufyrir-
tæki sem koma verður upp á
nýja staðnum, þegar mikil brögð
eru að búferlaflutningi, allt frá
vöggustofum og leikvöllum til
elliheimila og kirkjugarða.
Það verður að þenja út raf-
magns- og símakerfið á nýja
staðnum, auka vatnsveitur og
hitaveitur þar sem þær eru,
fjölga bifreiðastæðum, byggja ný
verzlunarhús og hleypa stoðum
undir ný atvinnufyrirtæki. Gera
má ráð fyrir, að þetta hafi verið
til að meira eða minna leyti, þar
sem fólkið áður bjó, og ekki brýn
þörf á að leggja í nema hluta af
þessum kostnaði öllum, ef því
hefði ekki verið hrundið úr
heimkynnum sínum með einum
eða öðrum hætti.
Ég ætla ekki hér að gizka á,
hvað það kostar þjóðfélagið að
tæma svo oe svo stórt þorp úti á
landi, eða þá sveitarfélag, og
koma fólkinu fyrir í nýjum heim-
kynnum, til dæmis í Kópavogi,
Garðahreppi eða þá í Reykjavík.
En ljóst er, að þar er ekki um
neinar smáupphæðir að ræða.
Þessu er ekki gefinn gaumur
jafnaðarlega, trúlega af því að
fólki er ekki tamt að rekja nægj-
anlega þræði orsaka og afleið-
inga. Eigi að síður er þetta skatt-
ur, sem á okkur leggst við mikla
fólksflutninga. í fáum orðum
sagt: Fari fjölmenn byggðarlög í
auðn, verðum við að axla byrði,
sem getur efalítið tekið viðlíka
í pyngjuna og aflabrestur á vetr-
arvertíð eða tregur sumarafli
síldveiðiskipa. Og þeir borga
ekki einir, er ganga verða frá
eignum sínum í fjarlægum lands-
hluta, heldur við öll.
Og enn má gefa gætur að einu.
Ef einhverjir þeir atburðir gerð-
ust snögglega í heiminum, að
við yrðum að sjá okkur farborða
um skeið á eigin spýtur, án telj-
andi viðskiptamöguleika utan
landsteinanna, hvar værum við
þá stödd, með yfirgnæfandi
meirihluti þjóðarinnar á litlum
bletti, en hluta landsins eyddan
að byggð og framfærslumögu-
leikum?
Af þessu má kannski gera sér
í hugarlund, að það er ekki fyrst
og fremst tilfinningamál, hvort
þetta eða hitt byggðarlagið fer í
auðn eða eitthvert hérað hangir
aðeins á horriminni vegna fólks-
fæðar. Það er ekki sér í lagi
um það að spyrja, hvort æsku-
stöðvar, heimahagar eða ættar-
stöðvar einhverra eiga að tæm-
ast af fólki. Þetta er þjóðhags-
legt viðfangsefni sem mjög miklu
varðar, hvernig staðið er að.
Geti menn fallizt á þessa rök-
semdafærslu er skylt að huga að
því, hvað veldur hinu mikla að-
streymi á Reykjavíkursvæðið.
Bót verður ekki ráðin á vanda,
nema menn geri sér rökstudda
grein fyrir orsökum hans. Hvað
veldur því, að fólk hrekst úr átt-
högum sínum, og hver er sá
segull, sem dregur það á Reykja-
víkursvæðið?
Þá er fyrst að líta á þá mein-
bugi sem taldir eru á búsetu í
svokölluðu strjálbýli úti á landi.
Foreldrar margra nefna það
kannski fyrst, hve það er dýrt og
erfitt að koma unglingum til
náms. Þá verður að kosta í skóla
í fyllstu merkingu þeirra orða,
fjarri heimilum sínum, jafnvel á
barnaskólastiginu sums staðar.
Til sérnáms verða þeir ef til vill,
og raunar oft, að fara í aðra
landsfjórðunga.
Þá er læknisþjónusta ónóg og
mjög örðugt víða að ná til lækn-
is, ef skjótt þarf til að taka.
Unga fólkið, vaxtarbroddur sér-
hvers byggðarlags, getur iðulega
ekki fengið vinnu heima fyrir,
nema af mjög skornum skammti
og helzt ekki nema vissa árs-
tíma. Iðnaður er alls enginn í
heilum sýslum, og í mörgum
hinna smærri sjávarþorpa er
ekki starf að fá við neitt nema
sjósókn og verkun sjávarafla sem
oft er árstíðabundinn. Afleiðing-
in er sú, að margt fólk verð-
ur að hrökklast burt í atvinnu-
leit (eða sækja burt vegna náms)
og svo vill þá svo fara, að það
snýr ekki heim aftur, en sezt að
fyrir sunnan. Margs konar vara
er dýrari úti á landi en á Reykja-
víkursvæðinu og veldur því sá
háttur, að mjög miklu af því
sem til landsins er flutt er um-
skipað í Reykjavík. Loks eru
skemmtanir víða fábreyttar og
félagslíf dauft, meðal annars af
því hve margt af unga fólkinu
leitar að heiman. Þannig leggst
margt á eitt, og vafalaust fleira
en hér er talið, til að rýja lands-
byggðina og þorp mörg af fólki.
Ekki er heldur að orsakalausu
að straumurinn liggur til Reykja-
víkur. Þyngsta lóðið hefur
kannski sjálft ríkisvaldið lagt á
metaskálarnar. Þar eru þjónustu-
fyrirtæki þess flestöll, ríkisskrif-
stofur, skólar og bankar, og allt
er þetta reist og rekið fyrir fé
landsmanna allra. Þetta er kost-
að með peningum, sem dregnir
eru saman af öllum landshorn-
um.
Engin stúlka getur orðið hjúkr-
unarkona, húsmæðrakennari,
ljósmóðir, nema eftir langdvalir
í Reykjavík, enginn piltur orðið
vélstjóri, loftskeytamaður eða
stýrimaður nema sækja þangað
nám, enginn getur orðið kenn-
ari án þess að nema þar, fjöl-
50