Samvinnan - 01.02.1970, Side 68
Við veizlu í Hollywood
skemmti Chaplin nokkrum vinum
sínum með því að herma eftir
ýmsum frægum persónum. Meðal
annars söng hann óperuaríu með
hárri og hljómmikilli rödd. Að
söngnum loknum sagði einn gest-
anna forviða:
— En Charlie, ekki vissi ég, að
þú hefðir svona fallega söngrödd.
— Það hef ég heldur ekki, var
svarið. — Ég var bara að herma
eftir Caruso.
Við töku kvikmyndarinnar Ein-
ræðisherrann bannaði læknir
Ohaplins honum stranglega að
reykja. En þegar næsta dag
mætti Chaplin hins vegar aftur
hjá lækninum og spurði, hvernig
málin stæðu núna, hvort hann
gæti fengið leyfi . . .
— En kæri maður, svaraði
læknirinn undrandi, það er ekki
nema einn dagur síðan ég út-
skýrði fyrir yður, hvers vegna
þér yrðuð að hætta.
— Já, það er alveg satt, svar-
aði Chaplin, en hafa læknavís-
indin þá ekki tekið neinum fram-
förum síðan?
asta orð! —□—
90 herbergi
öll með baðkeri eða steypibaði, síma, útvarpi
og sjónvarpi ef óskað er. Athugið hina fjöl-
breyttu þjónustu er Hótel Saga hefur að bjóða,
svo sem hárgreiðslustofu, snyrtistofu, rakara-
stofu, nudd og gufuböð.
Viljum sérstaklega vekja athygli á hinni miklu
verðlækkun á gistingu yfir vetrarmánuðina.
UOT€L
HAGATORG 1
REYKJAVÍK
sími 20600 __________\
©
Einhverju sinni á dögum þöglu
kvikmyndanna var Oharlie Chap-
lin spurður að því, hvernig hann,
sem allan daginn ynni við það
að gera kvikmyndir, gæti haldið
það út að eyða auk þess nokkrum
kvöldum í hverri viku í kvik-
myndahúsum. Hann Svaraði:
staðurinn, þar sem hægt er að
upplifa nokkuð, sem maður kemst
aldrei í kynni við í daglega líf-
inu. Það veitir mér alveg ósegj-
anlega gleði, þegar ég sé konur á
kvikmyndatjaldinu opna munn-
inn — án þess að segja eitt ein-
Ekkí bara falleg
Hurðirnar okkar þekkjast af fallegri áferð,
völdu efni og faglegum frágangi. Hitt sést
ekki eins vel. Þær eru gerðar með
fullkomnustu tækni, sem hér þekkist. Smiðirnir
hjá okkur smíða fátt annað en hurðir, —
en því meira af hurðum. Þess vegna merkjum
við hurðirnar, sem fara frá okkur.
Þá geta allir séð, að þær eru ekki bara
fallegar, — heldur líka góðar.
S£. INNIHURDIR - GÆDI í FYRIRRÚMI
SIGURÐUR
ELlASSONHF.
AUÐBREKKU 52, KÓPAVOGI,
SÍMI 41380
Bandarísk leikarahjónabönd
endast ekki ævinlega lengi. Leik-
konan Hka Chase var einhverju
sinni gift leikaranum Louis Cal-
hern, en hjónaband þeirra stóð
stutt. Að skilnaðinum loknum
kvæntist Calhern leikkonunni
Julia Hoyt.
Eftir brúðkaup þeirra sendi
Ilka Chase brúðinni öskju með
nafnspjöldum sem hún hafði lát-
ið gera sér og á stóð: „Mrs Louis
Calhern." í stuttu bréfi, sem
fylgdi gjöfinni, stóð þetta:
— Kæra Julia. Ég vona að
þessi nafnspjöld komist nógu
snemma til þín.
-□-
Þegar Philip Chesterfield,
brezki stjórnmálamaðurinn og
rithöfundurinn, var orðinn aldr-
aður og farinn að kröftum, hafði
hann það fyrir fasta venju að
fara dag hvern í stutta ökuferð í
vagni sínum. Vegna þess hve
Chesterfield var orðinn aldraður
og veiklaður varð vagnstjórinn
hins vegar að aka mjög hægt. í
einni af þessum rólegu ferðum
sínum mætti hann kunningja,
sem samgladdist honum með það,
að hann hefði enn möguleika á
því að vera dálítið úti.
— Þakka þér fyrir, svaraði
Chesterfield, en ökuferðirnar eru
nú orðnar lítið annað en eins
konar lokaæfingar fyrir jarðar-
förina mína.
-□-
Winston Churchill var ein-
hverju sinni á kosningafundi, þar
sem hann hélt harða áróðurs-
ræðu fyrir sjálfum sér. Þar taldi
hann fram hverja röksemdina á
fætur annarri sjálfum sér til
ágætis, en í miðri ræðu greip
maður í salnum fram í fyrir
honum og hrópaði:
— Ég kysi yður ekki, þó að
þér væruð sjálfur Gabríel erki-
engill.
— Það breytir engu, svaraði
Churohill án þess að láta sér
bregða, ef svo væri, þá væruð þér
alls ekki í mínu kjördæmi.
-□-
64