Samvinnan - 01.12.1973, Qupperneq 19

Samvinnan - 01.12.1973, Qupperneq 19
6'ara SAM V1NNAN EFNI HÖFUNDAR 3 Lesendabréf og Af gömlum blöðum 18 Ritstjórarabb 20 SJÓNMENNTIR Á ÍSLANDI (hringborðsumræða) Gísli B. Björnsson Guðrún Jónsdóttir Gylfi Gíslason Hörður Ágústsson Jón Haraldsson Sigurður A. Magnússon Stefán Snæbjörnsson 47 Heimur (Ijóð) Ólafur Gunnarsson 48 SAMVINNA: Eru hugsjónirnar gleymdar? Kristján Ármannsson 49 Nokkrar hugdettur um leikritið Hrafn Gunnlaugsson 50 Tréð (smásaga) Örn H. Bjarnason 52 Á jólanótt 1972 Sigurður Guðjónsson 52 Sorgarljóð „sjötíu og þrjú“ Einar Björgvin 53 Horfur sósialismans í Rómönsku Ameríku Halldór Sigurðsson 56 ' Koptarnir í Egyptalandi þokast til nýrrar sjálfsvitundar Ole Skjerbæk Madsen 59 Uppspretta hugsunar í vitundinni Jonathan Shear 61 Þrjú bókmenntanleg kvæði Þórarinn Eldjárn 64 Hrafnkels saga I pólitísku Ijósi Njörður P. Njarðvík 66 Tvö Ijóð í þýðingu Thors Vilhjálmssonar Bertolt Brecht 68 Heimilisþáttur Bryndís Steinþórsdóttir Um þátttakendur í hringborðsumræðunni um sjónmenntir á íslandi er meðal annars það að segja, að Gísli B. Björnsson gegnir nú skólastjóra- störfum í Myndlista- og handíðaskólanum jafnframt þvi sem hann rekur eina stærstu auglýsingastofu landsins; Hörður Ágústsson er listmálari og skólastjóri Myndlista- og handíðaskólans, en er í leyfi frá störfum til að Ijúka miklu verki um íslenzka byggingarlist. Flestar myndirnar, sem birtast með umræðunni, eru úr hinu mikla og fjölbreytilega myndasafni hans. Guðrún Jónsdóttir er arkítekt og fyrrum formaður Arkítektafélags íslands. Gylfi Gíslason er teiknari, málari, kennari og útvarpsmaður. Jón Haraldsson er arkítekt og hefur oft látið frá sér heyra á opinberum vettvangi um bygginga- og skipulagsmál. Stefán Snæbjörnsson er hús- gagnahönnuður. Ólafur Gunnarsson er ungt Ijóðskáld sem hefur gefið út eina Ijóða- bók. Kristján Ármannsson er kaupfélagsstjóri Kaupfélags Norður-Þing- eyinga á Kópaskeri. Hrafn Gunnlaugsson er Ijóðskáld og nemandi í leik- listarfræðum í Stokkhólmi. Fyrri hugdettur hans um leikritið birtust í 3. hefti Samvinnunnar á þessu ári. Örn H. Bjarnason dvelst í Kaupmannahöfn, en hefur á liðnum árum birt allmargar smásögur í blöðum og tímaritum. Sigurður Guðjónsson er ungur höfundur, sem er nýbúinn að gefa út sína fyrstu bók, „Truntusól". Einar Björgvin er ungur blaðamaður sem nokkuð hefur fengizt við Ijóðagerð og er að gefa út bók um reynslu sína af blaðamennsku. Halldór Sigurðsson er íslenzk-danskur blaðamaður sem kunnur er um öll Norðurlönd og víðar fyrir skrif sín um Rómönsku Ameríku og portúgölsku Afríku. Hann hefur gefið út þrjár bækur um þessi efni. Ole Skjerbæk Madsen er danskur guðfræðistúdent sem hefur lagt sig eftir að kynnast koptísku kirkjunni. Hann er sonur hins kunna íslandsvinar Axels Madsens, formanns danska organistafélagsins. Jon- athan Shear er Bandaríkjamaður og nam stærðfræði og heimspeki við Brandeis-háskóla, þar sem hann lauk BA-prófi 1962. Á árunum 1962-64 nam hann vísindaheimspeki við London School of Economics á Fullbright- styrk. Hann lauk MA-prófi við Kalíforníu-háskóla í Berkeley árið 1966 og hefur unnið að doktorsritgerð við sama háskóla, jafnframt því sem hann kennir heimspeki við Lone Mountain College í San Francisco. Þýðandinn, Sigurþór Aðalsteinsson, er við nám í Braunschweig í Vestur-Þýzkalandi og birti fyrir rúmum tveimur árum grein í Samvinnunni um „Jóga—inn- hverfa ihugun" ásamt félaga sínum. Þórarlnn Eldjárn er við nám í Lundi í Svíþjóð. Njörður P. Njarðvík er lektor í bókmenntum við Háskóla Islands og formaður útvarpsráðs. Bertolt Brecht er eitt áhrifamesta leikrita- skáld þessarar aldar, upprunninn í Þýzkalandi, en flæktist víða áður en hann fann aftur hæli í heimalandinu. Bryndís Steinþórsdóttir er mat- reiðslukennari í Langholtsskóla og meðal kunnustu sérfræðinga hérlendis á sínu sviði. Nóv.—des. 1973 — 67. árg. 6. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður A. Magnússon. Blaðamaður: Eysteinn Sigurðsson. Afgreiðsla og auglýsingar: Reynir Ingibjartsson. Uppsetning: Teiknistofa Torfi Jónsson. Útgefandi: Samband íslenzkra samvinnufélaga. Ritstjórn og afgreiðsla að Ármúla 3, sími 28900. Verð: 700 krónur árgangurinn; 125 krónur í lausasölu. Gerð myndamóta: Prentmyndastofan h.f. Brautarholti 16. Prentverk: Prentsmiðjan Edda hf.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.