Samvinnan - 01.12.1973, Blaðsíða 69
Brauðkollur með hrærðum eggjum
Velgið brauðkollumar (tartaletturnar) áður en þœr eru notaðar. Hrær-
ið saman 4 egg, 4 msk vatn og % tsk af salti. Bræðið smjörlíki við
meðalhita á pönnu. Hellið eggjunum á og hrærið þau með hægum
handtökum saman. Ath. eggin eiga að vera samfelld en ekki of hlaup-
in. Skiptið þeim í brauðkollurnar og skreytið með tómötum, olívum
og dilli.
Saman við hrærðu eggin er gott að hafa smátt skorið reykt kjöt,
steikt flesk (bacon), reyktan lax eða reykta síld, einnig margskonar
grænmeti, t. d. lauk, papriku (rauða eða græna) og sveppi.
Bananar með skinku
4 stórar skinkusneiðar
sinnep
4 bananar
4 tómatar
salt og pipar
1 dl rifinn ostur
Bananarnir mega ekki vera of þroskaðir. Smyrjið kjötsneiðarnar með
sinnepi og vefjið þeim um bananana. Smyrjið ofnfast mót og raðið
tómatsneiðunum í það, stráið salti og pipar yfír. Banönunum er raðað
þar ofan á og rifnum osti stráð yfir. Ef nýir tómatar eru ekki fyrir
hendi er ágætt að setja tómatkraft yfir bananana áður en ostinum
er stráð yfir. Bakað við 225 gráðu hita í 12—15 mín.
ítölsk tunga
1 litil nautstunga (ný eða léttsöltuð)
1 gulrót
1 laukur
50 g smjörlíki
40 g reykt svínakjöt (skinka)
4-5 tómatar nýir eða niðursoðnir
% dl hvit- að rauðvín
1 dl tungusoð
salt, pipar, timjan
1 lárviðarlauf, söxuð steinselja
(sósulitur)
Sjóðið tunguna á venjulegan hátt, þar til hún er nær fullsoðin. Fláið
húðina af. Skerið gulrótina í sneiðar, saxið laukinn og brúnið í smjör-
líkinu. Bætið skinkunni (sem áður er skorinn í litla bita) saman við
ásamt víninu og tungusoðinu. Afhýðið tómatana og látið saman við.
Kryddið (ath. að salta ekki of mikið). Sjóðið tunguna í sósunni við
mjög hægan hita um % klst. Takið tunguna upp úr sósunni, skerið hana
í sneiðar og raðið á djúpt fat. Sósan er bragðbætt, sósulit og rjóma
bætt í ef vill. Hellt yfir tungusneiðamar. Berið soðið grænmeti eða
hrátt salat, ásamt hrísgrjónum, með tungunni.
Kjúklingar í móti
1- 2 kjúklingar
3-4 msk smjör, smjörlíki eða matarolia
2- 3 laukar (saxaðir)
2 msk hveiti
1 tsk salt
Yi tsk pipar
Y. tsk timjan eða paprika
1 dl vatn
1 dl rjómi
2 msk tómatkraftur
100-200 g sveppir
Hreinsið kjúklingana, takið þá í sundur í 8-10 hluta, og brúnið og
leggið í ofnfast mót. Ljósbrúnið laukinn og stráið honum jafnt yfir
ásamt hveiti og kryddi. Sjóðið vatn, tómatkraft og rjóma á pönnunnl
og hellið yfir kjúklingana. Brúnið síðan sveppina heila eða í sneiðum
og bætið saman við. Bakið í ofni við jafnan hita 175-185 gráður um %
klst. Hafið lok yfir mótinu fyrstu 15-20 min. Ausið þá sósunni yfir
og bakið áfram. (Ef vill er gott að strá rifnum osti yfir og baka með
síðustu 10-15 min.) Klippið steinselju eða karsa yfir kjúklingana um
leið og þeir eru bornir fram með kartöflum eða hrísgrjónum og hráu
grænmetissalati.
Kaffihringur með ís og ferskjum
2 dl sykur
3 egg
75 g smjör
1 dl vatn eða mjólk
4 dl hveiti
lVz tsk lyftiduft
Bræðið smjörið við hægan hita, þeytið egg og sykur vel saman. Blandið
smjörinu, mjólkinni og sáldruðu hveiti ásamt lyftidufti varlega saman
við. Smyrjið hringmót og stráið brauðmylsnu í það. Bakið kökuna í
mótinu við um 175 gráðu hita í 40-50 mín. og kælið á kökugrind. Um
% klst. áður en kakan er borin fram er hálfum dl. af sterku köldu
kaffi hellt í hringmótið, kakan látin í og 1% dl af kaffi hellt yfir
(betra er að pikka kökuna með prjóni áður en það er gert). Látin
standa á köldum stað, hvolft á fat. Hringurinn er fylltur með ís og
ferskjum. Rifnu súkkulaði stráð yfir. í staðinn fyrir kaffi er gott að
blanda saman kaffilikjör (t. d. Kahlua) og ávaxtasafa.
Þættinum barst eftirfarandi uppskrift, sem er hér
með þakkað.
Góð gamaldags sírópsterta
400 g smjörliki
300 g sykur eða púðusykur
2 egg
500 g siróp
1 kg hveiti
3 tsk hjartarsalt
3 tsk negull
2 tsk kanell
2 tsk kakó
Hrærið smjörlíki, sykur og eggi vel saman, bætið sírópinu
saman við, ásamt þurrefnunum og hnoðið fljótt saman. Skipt-
ið deiginu og breiðið það út á fjórar plötur. Bakið við 200
gráðu hita í miðjum ofni. Kælið. Leggið tertuna saman með
smjörkremi og sveskjumauki. Geymið í loftþéttum innbúðum.
69