Samvinnan - 01.02.1977, Page 42
Sambandið tók í notkun vöruskemmur og fóðurblöndunar-
stöð í Þorlákshöfn, svo og fataverksmiðjuna Fífu á Húsavík.
Sambandið hóf smásöluverslun í Reykj avík, keypti starfandi
verslun og bætti við stórverslun við Austurstræti, þá einu
kjörbúðinni í Reykjavík.
1956
Sambandið og Olíufélagið keyptu í sameiningu olíuflutn-
ingaskipið Hamrafell, langstærsta skip íslendinga.
Samvinnutryggingar voru eftir tíu ára starf orðnar stærsta
tryggingafélag landsins.
Sambandið var meðal stofnenda Alþjóðasamvinnubankans.
1957
Útflutningsdeild Sambandsins var skipt í Búvörudeild og
Sjávarafurðadeild; Valgarð J. Ólafsson varð framkvæmda-
stjóri hinnar síðarnefndu, en Lúðvík Jónsson tók við skrif-
stofunni í New York. Þá var að nýju sett upp skrifstofa í
Hamborg sem Agnar Tryggvason veitti forstöðu, en Ásgeir
Magnússon varð framkvæmdastjóri í Kaupmannahöfn.
Mjór er mikils vísir. SamvinnusparisjóSurinn og: síðar Samvinnubank-
inn eru mikilvægar jijónustustofnanir sem einnig stuðla að fjárhags-
legu sjálfstæði samvinnuhreyfingarinnar.
íslensk alþýða nokkrum milljónum ríkari
Jónas frá Hriflu var um áratuga skeið öflugasti mála-
fylgj umaður samvinnustefnunnar á íslandi. Á þeim vett-
vangi kvaddi hann sér fyrst hljóðs í Tímariti samvinnufé-
laganna 1915, þegar Hallgrímur Kristinsson var nýorðinn
erindreki samvinnufélaganna erlendis; vildi Jónas þá
þegar ákveða næsta skref, stofnun samvinnuheildsölu í
Reykjavík undir forustu Hallgríms. Hér verða tekin upp
aðalatriði greinarinnar er hét Heildsala samvinnufélaga.
Kaupfélagsstefnunni hefir drjúgum miðað áfram á
síðustu árum hér á landi. í allmörgum byggðum hafa
kaupfélögin, nú orðið, gersamlega yfirtökin í verslunar-
málum, og í öðrum minnkað kaupmannaveldið til stórra
muna. Ekki leið á löngu áður en glögglega sáust heilla-
vænleg áhrif samvinnustefnunnar í þeim sveitum þar
sem hún var lengst á veg komin. Þau héruð eru nú á
undan á nærfellt öllum sviðum, og þar líður fólkinu best,
bæði líkamlega og andlega. Byggðirnar mundu bera þegj-
andi vott um undramátt samvinnunnar þó að engar tölur
væru til að skýra þetta efni...
En nú verður að gæta þess að þó kaupfélögin séu góð,
þá eiga þau þó enn eftir mikið óunnið að takmarki sínu.
Kaupfélögin okkar, jafnvel hin bestu, eru í höndum kaup-
manna aff mestu leyti. Þau hafa losað nokkurn hluta
þjóðarinnar úr klóm smásalanna (kaupmannanna) hér
á landi. En sjálf verða þau að skipta við umboðsmenn og
stórkaupmenn sem eru, að sínu leyti, engu mildari í
verslunarsökum heldur en smákaupmennirnir.---------
Sú leið, sem hér verður bent á, er: að kaupfélögin
myndi nú á næstu árum heildsölu íslenskra samvinnu-
félaga, og aff hún hafi bækistöffu sína í Reykjavík, og
aff ráðanautur samvinnufélaganna sé sjálfkjörinn for-
stjóri hennar.
Mjög margt mælir með þessari framkvæmd, en fátt
eða ekkert á móti. Fyrst er hin erlenda reynsla, sem nú
hefir verið lýst...
í öðru lagi er sorgleg reynsla okkar sjálfra frá ánauð-
artímunum í þrældómshúsum danskra og íslenskra stór-
sala. í þriðja lagi er ásókn umboðssalanna í Reykjavík —
því allir vilja þeir koma sér vel við kaupfélögin. Þeir
þjóta nú upp, hver um annan þveran: gamlir hálfupp-
flosnaðir kaupmenn og barnungir nýgræðingar. Og flestir
eða allir græða þeir, eða lifa að minnsta kosti eins og þeir
væru ríkir menn. Ef efnalausir og reynslulitlir unglingar
og skipreika kaupahéðnar geta náð í mikil verslunarsam-
bönd undir eins og hagnast á þeim, þá ætti að vera létt
fyrir kaupfélögin að standa straum af einni heildsölu-
skrifstofu í landinu sjálfu. í fjórða lagi léttir sú breyting,
sem er að verða á siglingum til útlanda, mjög fyrir þess-
ari hreyfingu. Höfnin í Reykjavík er nú hálfsmíðuð eða
meira. Eftir tvö, þrjú ár verður hún fullgerð. Um sama
leyti verða strandbátar Eimskipafélagsins teknir til starfa
og Norðurálfuófriðnum lokið. Þá rennur upp nýtt tímabil
í verslunarsögu íslands. Reykjavík verður miðstöð allrar
verslunar í landinu, með mjög tíðum ferðum til útlanda
... Við höfnina í Reykjavík verða byggð mikil vöru-
geymsluhús sem leigð verða hverjum þeim heildsala
sem vill og getur notað þau. Þar verður vörunum skipað
upp með litlum kostnaði og þær geymdar þar um stund
uns þær verða fluttar með strandbátunum inn á hverja
einustu smáhöfn sem vera vill. Þetta mun verða megin-
straumur viðskiptanna þó að talsvert af varningi verði
38