Samvinnan - 01.02.1981, Page 47
TIL NÝRRA STARFA
Gunnar Gunnarsson var
ráðinn framkvæmdastjóri
Dráttarvéla hf. frá 1. janúar
sl. Gunnar er fæddur í
Reykjavík 3. sept. 1939. For-
eldrar hans eru Gunnar
Árnason, búfræðikandídat,
og kona hans, Olga Áma-
dóttir. — Að loknu búfræði-
námi í Noregi á árunum
1956—1958, hóf Gunnar nám
við framhaldsdeild Bænda-
skólans á Hvanneyri og lauk
þaðan prófi sem búfræði-
kandídat árið 1961. Að því
námi loknu réðst hann til
starfa hjá Véladeild Sam-
bandsins. Árið 1966 varð
hann deildarstjóri Búvéla-
deildar og gegndi því starfi
til ársins 1978, er hann
varð aðstoðarframkvæmda-
stjóri Véladeildar — Gunn-
ar er kvæntur Elínu Jónu
Jónsdóttur.
Arnór Valgeirsson hefur
tekið við starfi deildarstjóra
Fóðurvörudeildar Innflutn-
ingsdeildar Sambandsins.
Amór er fæddur að Gemlu-
falli í Dýrafirði 9. ágúst
1932. Hann lauk prófi frá
Samvinnuskólanum árið 1951
og réðist strax að því loknu
í þjónustu Sambandsins.
Hann vann um skeið hjá
Bókaútgáfunni Norðra og
Samvinnunni og var jafn-
framt auglýsingastjóri Sam-
bandsins. Árið 1956 hóf
hann störf hjá Innflutn-
ingsdeild Sambandsins sem
sölumaður í vefnaðarvöru-
deild, en árið 1961 gerðist
hann starfsmaður Dráttar-
véla hf. og vann þar í tæpa
tvo áratugi, síðustu 11 árin
sem framkvæmdastjóri. —
Amór er kvæntur Elísabetu
Hauksdóttur.
SteLnþór Þorsteinsson hef-
ur tekið við starfi deildar-
stjóra í Afurðasölu og Kjöt-
iðnaðarstöð Búvörudeildar.
Steinþór er fæddur á Skaga-
strönd 1937, en á ættir í
Húnavatnssýslu og Þing-
eyjarsýslu. Hann fluttist til
Reykjavíkur fimmtán ára
gamall. Árið 1958 lauk hann
prófi frá Samvinnuskólan-
um að Bifröst og gerðist
sama ár kaupfélagsstjóri
hjá Kaupfélagi Hvamms-
fjarðar í Búðardal aðeins 21
árs. Því starfi gegndi hann
samfellt til haustsins 1979,
er hann gerðist fulltrúi á
skrifstofu Sambandsins í
Lundúnum. — Steinþór er
kvæntur Gunni Axelsdóttur.
Um siðustu áramót tók
Sigurður Á. Sigurðsson við
starfi framkvæmdastjóra
Lundúnaskrifstofu Sam-
bandsins. Hann er fæddur
23. september 1949, lauk
prófi frá Samvinnuskólan-
um að Bifröst 1969 og var
við framhaldsnám í Eng-
landi árið eftir. Hann var
við nám og störf ■ í Þýska-
landi frá ársbyrjun til
hausts 1972, er hann fór til
starfa á Hamborgarskrif-
stofu Sambandsins, þar sem
hann var til vorsins 1974.
Siðan hefur hann starfað
hjá Innflutningsdeild, þar
af sem deildarstjóri Fóður-
vörudeildar síðustu þrjú ár-
in. — Sigurður er kvæntur
Ingibjörgu Dalberg.
milli þessara tveggja skauta og þiggja
frá þeim blæ sinn á víxl. Þetta á engu
síður yið um kvæðin í síðustu tveimur
bókum Tómasar en hinum fyrri, tæki-
færiskvæðin einnig. Haustbirtan, sem
hvelfist yfir fjalli staðfestunnar og
fljóti hverfulleikans í átthögum
skáldsins, er þar einungis orðin kald-
ari og tærari en áður, en um leið hið
eina rétta ljós til að heyja i glímuna
sáru við hin miklu hugtök, Timann
og Dauðann, og tákn þeirra og kveða
sig í sátt við þau með fallþungan nið
fljótsins og sefandi harmljóð þess fyr-
ir hlustum. Svo næm og örugg er lífs-
skynjun og skáldsýn Tómasar Guð-
mundssonar.
Ég var innan við fermingaraldur,
þegar ljóðheimur hans opnaðist mér
með öllum sínum töfrum, norðlenskur
strákur, sem dáði þetta skáld úr fjar-
lægð. Sá ljóðheimur lætur engan ó-
snortinn, sem skyggnist þar um. Um
leið og ég óska Tómasi til hamingju
með afmælisdag hans og ævistarf,
vona ég, að hanit virði mér á betri veg
þessi erindislok:
Við sundin blá þú sigldir dvergaskipum
og seiddir til þín hjörtu þeirra barna,
sem daglangt unnu dýrum strengjagripum
og dreymdi um nætur ljóðsins innsta
kjama.
Þín fagra veröld vex þeim enn í brjósti
og verður eitt með horfnum æskudögum.
í þeirra hug er oft sem elding ljósti
með óm úr djúpri kyrrð af týndum lögum.
Er hvolfið allt var stjörnum vorsins stafað
og strengi hrærði það, sem burt var liðið,
í kvöldsins dýrð í djúpið blátt var kafað
og djásnum þínum stráð um rökkvað sviðið.
Og þar sem fljótið helga-áfram Imígur,
að haustnóttum ég sé þig ennþá standa
bjartan á svip. Frá brjósti þínu stígur
ein bæn í hljóði á mörkum tveggja landa.
Heim til þín, ísland, allir vegir liggja,
elfan og fjallið kveða djúpum rómi.
Fugl þess úr hreiðri maður má ei styggja,
móinn er vígður dularfullu blómi.
Hve sælt það skáld, sem skynjar vegferð
sína
jafn skýrri sjón og veitir öðrum bömum
þá gleði að mega gista veröld þína:
Garðljóðsins heim við blik frá Vorsins
stjörnum.
♦
47