Samvinnan - 01.12.1981, Page 48
Gist undir höku kerlingar
Portúgalskt nautaat
er ekki eins æsilegt og
það spánska, því
að nautin eru aðeins
særð en aldrei
drepin...
hið súra hversdagsvín Portú-
gala. Meðan á snæðingi stóð
virtum við fyrir okkur
skrautmálaða mótorbátana
í höfninni. Þeir báru flestir
kvenmannsnöfn, svo sem
Juanita, Mirita og Ana de
Jesu. Sjómenn voru að búast
i róður, setja hreinsuð net
um borð og i nesti var búst-
ið, óinnpakkað hveitibrauð
og rauðvínsflaska, en litil
sardínugrill virtust vera um
borð í hverjum bát.
Þarna i Portimao borðuð-
um við seinna ódýrastan
mat, sem við höfum fengið
á veitingahúsi. Við gengum
inn eina af þröngu hliðar-
götunum upp af aðaltorginu
við Casa Inglesa (Enska
húsið) niðri við höfnina og
stefndum á litið veitinga-
hús, sem nefndist Zisa. Þá
kom þar út maður, sem
benti okkur valdsmannlega
að ganga yfir götuna og
leiddi okkur síðan inn á
stað, sem við sáum ekki bet-
ur en væri gamall vinlager.
Við túlkuðum þetta þannig
að svo troðfullt væri yfirleitt
á Zisa, að þeir hefðu neyðst
til að taka lagerinn undir
veitingasölu. Þarna var
matborðum troðið inn eins
þröngt og mögulegt var og
aldeilis „setinn Svarvaðar-
dalur“ og næstum eingöngu
Portúgalir að fá sér sunnu-
dagsmat og ræddu hátt
saman að venju. Meðfram
öllum veggjum voru saman-
skrúfaðar j árngrindahillur
(svona eins og á bilaverk-
stæðum) fullar af vínflösk-
um og kútum, ýmist fullum
eða tómum. Frá okkar borði
sáum við gegnum járnhill-
urnar fram á barinn, sem
hafði sérstakar dyr út á
götu. Þar brá fyrir mörgu
og margvislegu andlitinu og
menn sátu þar á ölkössum,
ef þeir þá fengu sér sæti,
flestir stóðu við barinn.
Þarna borðuðum við ágæt-
an kálfasnitsel, tveir fengu
fiskisúpu og drukkum flösku
af bragðgóðu og mátulega
volgu rauðvini með og kost-
aði þetta sem svarar 80 ís-
lenskum krónum — fyrir
fjóra.
Seinna fórum við á nokk-
uð þekktan veitingastað
þarna skammt frá, Avo-
zhina, og borðuðum réttinn
cataplana, sem dregur nafn
sitt af sérstökum potti, sem
hann er gufusoðinn í. Þetta
var allskonarskelfiskur,soð-
inn i sínum litlu skeljum,
skinka o. fl. kjöt, steinselja
o. fl. grænmeti og vel krydd-
að með hvitlauk og bragðað-
ist ágætlega.
Á hverju kvöldi var fjöl-
DOMUS
Vöruhúsið að Laugavegi 91
Kaupfélag
Reykjavíkur
og
nágrennis
A BOÐSTOLUM A
EINUM STAÐ
Leikföng Gjafavörur Fatnaður
Skór Búsáhöld Heimilistæki
LEITIÐ EKKI LANGT
YFIR SKAMMT
48