Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Page 2

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Page 2
70 vinnufjelagshreifingar, hjer á landi, eigi rót sína að rekja til þessa fjelags. Mjer hefir nú alia tíð verið vel til Þingeyinga frá því fyrst að jeg kynntist þeim, en síðan eru 22 ár, og er mjer því fjarri skapi, að draga nokkuð úr þeim heiðri er þeir eiga skilið, bæði að því er snertir forgöngu í fjelagsskap og fleiru, enda þykist jeg hafa látið þá njóta sannmælis í því efni, þótt Benedikt minn frá Auðnum líti nokkuð öðrum augum á það mál. En óneitanlega minna ummæli hans í greininni »Bændafjelög< í tíma- riti þessu, mig á nokkra þingeyska sjálfhælni. Manni dettur ósjálfrátt í hug Bogi okkar Melsted, sem eins og kunnugt er, þakkar sjálfum sjer flest eða allt, sem gert hefir verið á þessu landi, í seinni tíð, til umbóta at- vinnuvegunum, verzluninni, samgöngumálum, og fl. En að þessu öllu slepptu þá hefir nú reynslan sýnt það áþreifanlega, að eigi er það ofmælt þó sagt sje, að kaupfjelagsskapurinn hjer á landi, almennt talið, hafi eigi fram að þessu orkað eða tekizt að ná þeirri fullkomnun sem nauðsynleg er til þess að tilgangi hans verði náð. Kaupfjelagsskapurinn er því miður enn þá í barndómi, hjer á landi. Hann er enn, og verður vafalaust um tals- vert skeið, meira og minna háður gömlum venjum og þeim hugsunarhætti sem í sjálfu sjer er andvígur kaup- fjelagshugmyndinni eða stefnu hennar, í samanburði við það, þar sem þessu er lengst til leiðar komið meðal annara þjóða og árangurinn því áreiðanlegastur. * II. Eitt af áþreifanlegustu aðalmeinum kaupfjelagsskapar- ins, hjer á landi, er það, hversu margir menn eiga erfitt með að skilja stefnu hans og markmiö. Menn líta á hann svipað því, sem áður var litið á kaupmennina, eða þá stjett og atvinnurekstur yfir höfuð að tala.

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.