Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Síða 6

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Síða 6
74 ætla sjer að kaupa, en selja aptur sína innlendu vöru fyrir hið hæsta verð, sem kann að fást fyrir hana, alveg án tillits til þess, optast nær, hvernig svo ársverzlunin öll ber sig í heild sinni. Ekki að tala um hitt megin- atriðið, að endurbœtt framtíðarverzlun sje höfð í huga, nje litið eptir því, hvernig viðskiptanauturinn muni, samt sem áður, sjá sínum hag borgið, þegar öll kurl eru komin til grafar. Þó menn sjái það enda, með opnum augum, að eins og samkeppninni er stundum háttað hjer á landi, þá myndar hún fullkomið falsverð og falsverzlun, þá eru hinar gömlu verzlunaróvenjur svo fastar í sessi, hugs- unarhátturinn svo þreklaus eða spilltur, að þessu sýnist vonlítið að fá breytt. F*ó þeir menn eigi hlut að máli, sem annars eru glöggir og velviljaðir, þá halda þeir fast við sinn keip: að styðja verzlun keppinautanna, ef hægt er að fá ýmislegt smávegis hjá þeim lækkað niður fyrir kaupfjelagsverðið, með »prútti« og »prósentu« gyllingum. Hvernig myndast þá eðlilegt varningsverð yfir höfuð að ræða? Eptir almennum viðskiptahætti í heiminum fer verð- lagið vanalega eptir framboði vörunnar og eptirspurn eptir henni. Ef framleitt er meira af einhverri vöruteg- und, en nemur eptirspurn eða neyzlu hennar, þá lækkar verðið. Ef eptirspurnin, hinsvegar, og neyzlan, að því er snertir einstakar vörutegundir, er meiri en framleiðslan, þá hækkar verðið. Þessi regla, eða þetta allsherjarlögmál ræður aðallega verðlaginu á heimsmarkaðnum, nú á dögum. A fyrri tímum, meðan samgöngur voru litlar og ófull- komnar, og enginn verzlunarfjelagsskapur átti sjer stað, þá höfðum vjer, íslendingar, ekkert að segja af heims- markaðnum, eða verðlagi því,. sem hann skapaði. Pá voru það útlendu kaupmennirnir, sem hjer verzluðu, er einir rjeðu verðlagi á öllum varningi bæði innlendum og útlendum. Og verðlaginu höguðu þeir eðlilega þann-

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.