Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Page 9

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Page 9
77 3. Að lána ekki út vörur nema um stuttan tíma og gegn vöxtum. 4. Að fækka ónauðsynlegum milliliðum. 5. Að skilja sem mest að innkaup á útlendu vörunni og sölu á innlendum afurðum. Með öðrum orðum: að afnema vöruskiptaverzlunina. Þessum meginatriðum gengur kaupfjelögunum illa að fullnægja eða framkvæma þau í reyndinni hjer á landi, enn sem komið er, og er það margt sem til þess ber. Einna tilfinnanlegasti erfiðleikinn, og sá sem langverst er að ráða bót á, er efnaskortur fjelaganna og peninga- leysið. Flest okkar kaupfjelög byrja með tvær hendur tómar, eða því sem næst. En þegar búið er að koma nafninu á stofnun fjelagsins, þá er talið sjálfsagt að byrja þegar í stað á framkvæmdum: panta vörur, taka hús á Ieigu eða kaupa þau, ásamt fleiru því um líku. Eina fangaráðið sem þá verður að grípa til er það: að taka lán, ef það fæst, eða þá að fá hinar pöntuðu vör- ur lánaðar fyrir milligöngu umboðsmanns fjelagsins í útlöndum. Stofnbrjefafjeð er vanalega svo lítið, að það dregur skammt. En með þessu er fjelagsskapurinn í raun og veru heptur á höndum og fótum. Framkvæmd- ir fjelagsins verða seinfara og þunglamalegar. Sjálfstæði fjelaganna, út á við, er mjög mikið skert, og hagsmuna- vonin rýrð, þegar svona er högum háttað. Það er frá- leitt það eitt, sem þá kemur til greina, að vextina þarf að leggja á lánsvöruna, heldur munar hitt miklu, að geta eigi leitað fyrir sjer með vörukaupin þar sem bezt hentar í þann og þann svipinn, hvar sem vera skal, auóvitað helzt hjá frumframleiðendunum sjálfum, og kippa þannig í burtu öllum milliliðum, en verða sjálfur aðnjótandi þess afsláttar er optlega fæst með því móti að kaupa mikið í senn og án allrar áhættu fyrir selj- andann. Til þess að kaupfjelagsskapurinn geti staðið föstum fótum, notið sín fyllilega og hindrunarlaust, og rutt sjer

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.