Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Page 42

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Page 42
110 III. fmislegt (að mestu þýtt úr úlendum samvinnufjelagaritum). 1. Veltufjef'. (Kooperatören 1908. Nr. 1.) »Vilji maður takmarkið, verður maður einnig að vilja veginn til að ná því« er góð og örugg regla. En svo er að sjá að margir, sem ganga inn í samvinnufjelögin, þekki ekki þessa reglu. Hver maður, sem nokkuð vill beita íhugun sinni, hlýtur að geta skilið það, að til fjárhagslegrar samvinnu er óumflýjanlegt að hafa í höndum þann viðskiptamiðil eða verkfæri, sem heitir peningar, og útvegun þeirra verða fjelagsmenn sjálfir að annast. Auðvitað væri það ákjósanlegast að allar vörur væru, þegar í fyrstu, að eins keyptar gegn peningum, er fjelagsmenn Ijetu af hendi fyrirfram, og sameiginleg vörukaup framkvæmd að því fengnu. En þessu getur eigi verið að heilsa, eins og högum manna er almennt háttað, og þess vegna hafa menn almennt tekið annað ráð, sem hvarvetna hefir vel gefizt, þar sem því hefir verið fylgt tneð fullum skilningi og festu af hálfu samlagsmanna, og það er: að safna veltufje með ýmsum ráðum, svo sem: inn- gangseyri, tillagi til stofnsjóðs, með því að láta ágóða fjelagsmanna ávaxtast í fjelaginu, einnig sjerstakar inn- eignir, m. fl. og fl. Með þessari aðferð er eiginlega engum fátækling bægt frá því að gerast fjelagsntaður, þó hann f fyrstu geti eigi lagt fram fje til samvinnunnar, sem neinu verulegu nemi, ef hann að eins skuldbindur sig til þess að fylgja fjelagsreglum og leggja sinn skerf fram til veltufjárins með tímanum, annaðhvort með smáaukaframlögum eða láta ágóðann vera kyrran í fjelaginu. En, skyldu menn þá ekki mega gera sjer í hugarlund að þeir, sem gerast fjelagsmenn, en áður hafa árum sarnan-verzlað við kaupmenn, með heldur lakara verð-

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.