Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Side 47

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Side 47
2. Stór viðskiptavelta tryggir kaupfjelaginu góð kjör í vörukaupunum, og þessi iiagnaður verður enn þá meiri, þegar fjelagið getur borgað hinar keyptu vörur með peningum. 3. Kaupfjelögin iáta menn, með fastákveðnum launum, selja eða afhenda fjelagsvörurnar, sem eru skuld- bundnir til að gera full reikningsskil; en verzlunará- góðinn er eign fjelagsmanna sjálfra, og hafa þeir full og óbundin umráð yfir honum á aðalfundi fjelagsins, ár hvert. 4. Þegar hin smærri kaupfjelög mynda eitt stórt sam- bandskaupfjelag, sem framkvæmir vörukaupin í einu lagi í stórkaupum, þá getur það fjelag náð í hin á- ágœtustu vörukaup, sökum vörumagnsins, er aptur dreifist út meðal hinna mörgu og áreiðanlegu fjelags- kaupenda. 5. Allar tilraunir til viðskiptasvika hverfa í kaupfjelögun- um, af því starfsmenn þeirra hafa engan eiginhagnað, hvorki af vörufölsun nje rangri vöruúthlutun. ö. Starfsemi kaupfjelaganna fer fram algerlega á opin- beran hátt. Reikningar þeirra eru prentaðir og aug- lýstir að því búnu; hefir því hver fjelagsmaður ó- hindraðan aðgang að þeim. 7. Með því að innleiða þá reglu í kaupfjelögunum: að hönd selji hendi, geta fjelagsmenn orðið fjárhagslega frjálsir og óháðir. Þetta frelsi sitt geta þeir gert enn þá tryggara sökum fjelagságóðans, sem þeir fá í sinn hlut. 8. Kaupfjelögin tryggja stöðu starfsmanna sinna í öllu tilliti. Gagnvart þeim þarf engin ákvæði að setja með lögum eða almennum reglugerðum, að því er snertir vinnutima og verkalaun. 9. Hver sá maður, sem hefir ástæðu til þess að fara gætilega með tekjur sínar. Hver, sem leggur áherzlu á það að ná í góðar vörur. Hver, sem vill hlynna að rjettlátri skipting auðsins.

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.