Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Page 54

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Page 54
122 loks fyrir alvöru teknir að snúa sjer að samvinnufjelags- skap og almennri samvinnu, einkum í kaupfjelagsmálum. * Hin þýðingarmesta krafa, sem gerð er til hvers sam- vinnufjelagsmanns er sú: að hann starfi sem tryggur fjelagsmaður í fjelagi sínu. Pessi starfi er fólginn í því, í fremstu röð, að hann hlaupi aldrei fram hjá fjelaginu, þó útlit sje fyrir það, i augnablikinu, að hann geti haft ofurlítinn hagnað af því. Spyrjið einkasala að því, hvort honum komi til hugar að kaupa heimilisnauðsynjar sínar hjá öðrum kaupmanni, ef þær eru til í hans eigin sölubúð; hann mundi hlæja að yður eður ætla að verið væri að gera gis að sjer, og þó væri það ekki hótinu broslegra af honum að gera þetta en þegar kaupfjelags- maðurinn fer að flækjast á meðal einkakaupmanna. Það er að vísu formleg regla, að húsbóndinn komi fram sem meðlimur í kaupfjelagi, en í sjálfu sjer er hann það að eins sem fulltrúi heimilisins, og í engri grein er það jafnnauðsynlegt að húsbóndans framkoma sje í samræmi við skoðanir húsmóðurinnar. Ef konan er góð og umhyggjurík húsmóðir getur hún, í raun rjettri, gert meira að verkum en maðurinn, til þess að efla hollan heimilisfjárhag. Það gagnar smátt þó maðurinn skilji góðar frumreglur og breyti eptir þeim, ef konan getur eigi tileinkað sjer sama skilning nje tek- ið þátt í samvinnunni. Pess vegna er það mikill mis- skilningur af mönnunum, að taka verulegan þátt í sam- vinnufjelagsskap, án þess að konur þeirra fylgist með í skilningi og framkvæmdum. Næstum frekar en endrar nær verður valdboð, frá mannsins hálfu, þýðingarlítið í þessum greinum. í mörgum löndum, þar sem samvinnufjelagsskapur hefir náð þroska, hefir mönnum verið Ijós þýðing þess að fá konur til samvinnunnar og að það sje skylda

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.