Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.04.1909, Page 65
133
8,589 verkamenn.) Þessar verksmiðjur selja einkanlega
kaupfjelögunum vörur sínar.
Fyrsta gufuskip enska sambandskaupfjelagsins var sett
á flot árið 1879. Nú á fjelagið sjö gufusl<ip.
Menn mega eigi ætla að hinir brezku verkamenn hafi
gefið sig svo alla við hinum verklegu framkvæmdum, að
þeir sökum þess hafi gleymt hinni andlegu hlið fjelags-
hugsjónarinnar. Pvert á móti. Upplýsingarstarfsemi kaup-
fjelaganna er fram úr skarandi mikil. Hin stóru sambands-
kaupfjelög gefa út, á hverri viku, fjelagsblöð með 30 — 40
blaðsíðum. Auk þess kemur út fjöldi annara blaða og
rita sem bæði starfa í þarfir samvinnufjelagsskaparins og
flytja jafnframt allmikið lesmál, til fróðleiks og skemmt-
unar.
Mörg ensku kaupfjelögin eiga sjálf bókasöfn og lestr-
arsali; þau hafa Iagt fram drjúgan skerf til fræðslufjelaga,
skemmtigarða handa börnum m. fl. Kvenfólkið í ensku
kaupfjelögunum hefir myndað sjerstök fjelög. Pessu dæmi
er nú farið að fylgja í Svíþjóð. Fjelög þessi hafa haft
mikla þýðingu í því efni að útbreiða samvinnufjelags-
skapinn.
Milli kaupfjelaganna og iðnaðarmannafjelaganna hefir
ávallt verið góð samvinna og hafa kjörnir menn verið
sendir á aðalfundi fjelaganna í hvorum flokknuni fyrir
sig.
Ef menn spyrja eptir því, hversu mikið gagn ensku
verkmannastjettirnar hafi haft af samvinnufjelagsskapnum,
þá er því ekki auðsvarað, af því hæfileg samanburðar-
atriði eru ekki auðfengin. En það er óhætt að fullyrða,
að kaupfjelögin hafa veitt meðlimum sínum góða efna-
lega hjálp. En þó er má ske mesta þýðing ,fjelaganna
fólgin í þvi, að þau hafa kennt verkamönnum að hafa
sjálfir umboð sinna eigin fjármála, og á þann hátt hafa
þeir aflað sjer þeirrar þekkingar á viðskiptalífinu, heiðar-
legri og happasælli verzlun, sem eila hefði naumast verið
kostur á, og meðfram þess vegna fylgja þeir eindregið
10