Andvari

Volume

Andvari - 01.04.1962, Page 32

Andvari - 01.04.1962, Page 32
30 SVEINN SKORRI HÖSKULDSSON ANDVAIU ljós í Lærða skólanum og skýrðust enn betur á stúdentsárum hans. Flokkadrættir voru ekki óþekktir með íslenzkum stúd- entum í Idöfn, og árin fyrir komu Hann- esar þangað höfðu þeir Gestur og Þór- hallur Bjarnarson stundum slegið í brýnu við rosknu mennina í Islendingafélaginu og veitzt allharkalega að Gísla Brynjúlfs- syni.1) Eftir komu Hannesar til Idafnar jukust þessar erjur enn. Þótt íslendingar deildu þannig snarplega sín á meðal, héldu þeir yfirleitt hópinn gagnvart Dön- um, töldu sig enda tíðum verða fyrir lítilsvirðingu úr þeirri átt. Áður en vikið sé að þætti Hannesar í innbyrðis deilum Islendmga, skulu rakin nokkuð skipti hans við Dani, en þar varð honum þungt í skauti flaggamáliÖ, sem að var vikið. Vorið 1882, 10. júní, sá Bertel ásamt tveimur Dönum um skógarför Garðbúa, en ekki varð sú forstaÖa hans til þess að draga íslendinga út í beykilundi Sjá- lands, heldur var hann þar einn meðal danskra.2) En fáeinum dögum síðar, 19. júní, dró til sögulegra tíðinda. Nokkrir norskir stúdentar heimsóttu þá Garö, og var þeirn haldin dýrleg veizla með mik- illi bjórdrykkju undir greinum linditrés- ins. Voru þar margar ræður haldnar og minni drukkin. Fór allt fram af gleöi, unz Skúli Thoroddsen reis upp og mælti fyrir minni norska stjórnmálaskörungsins Johans Sverdrups. Segir, að Danir og sumir Norðmannanna hafi setið undir ræðunni og fussað. Þá var Hannesi nóg boðið. Hann bað um orðið, og cr svo frá skýrt í Kirkjubók: „Soldet, som hidindtil havde gáet rigtig livligt og muntert, skulle imidler- tid fá en mindre heldig afslutning, idet 1) Sbr. bréf Eiríks Jónssonar til Bjöms M. Ólsens 18. jan. 1880, Lbs. 3480, 4to. 2) Regensens Arkiv: Regensens Kirkebog 1879 —1887. Hafsteinn fik ordet, ligesá snart han rejste sig, blev modtaget med diverse mere el. mindre passende tilráb, sá at han ikke kunne fá begyndt; herover blev han noget forbitrct, og da larmen vcdblev, angreb han i meget voldsonnne og skarpe udtryk de danske og drog tilfelts mod deres fremgangsmáde og opf0rsel lige over for deres islandske kollegaer pá Regensen; herved forögedcs — naturligvis — tumul- ten, og sk0nt Hjfirleifsson pá en del andre islænderes vegne tog de danske i forsvar og benægtede rigtigheden af Hafsteins udtalelser, var der dog derved kommet en sádan misstemning ind blandt folk, at soldet mátte hæves pludselig kl. c. 114; en del af selskabet fulgte med nordmændene og fortsatte soldet ude i byen. Denne begivenhed fik et lidet Nach- spiel, idet provsten, der var meget indig- neret over islændernes adfærd ved denne lejlighed, lod dem kalde til at m0dc hos sig nogle dage efter soldet; hvor- ledes sammenkomsten l0b af, vides imid- lertid ikke sikkert."1) Einar minntist síðar á þetta atvik og dáðist mjög að ræðusnilld Idannesar í það skipti: „Hafi Danir verið fullir af háði áður, þá voru þeir nú fullir af reiði,“ segir hann.2) Ekki minnist hann þó þarna á ræðu sjálfs sín, en segir aðeins, að einn íslendingur til hafi talað og reynt að bera klæði á vopnin og hafi sú ræða mildað prófast svo, að hætt hafi verið við að reka alla íslendinga af Garði, sem annars hefði verið til athugunar.2) Þótt þannig skærist í odda með Hann- esi og dönskum stúdentum, mun þessi senna sízt hafa orðið til þess að spilla 1) Regensens Arkiv: Regensens Kirkebog 1879 —1887. 2) Hannes Hafstein á stúdentsárunum, Eim- reiðin 1932, bls. 22.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.