Andvari

Ukioqatigiit

Andvari - 01.04.1962, Qupperneq 35

Andvari - 01.04.1962, Qupperneq 35
ANDVARI LÁTTU GAMMINN GEISA 33 Oft um þessa þungu molludaga þyrstir skáldin mjög í góðan bjór. Þorstinn brennir brjóst og svangan maga, breiskin tungan flækist eins og þvaga, æðaslögin eru þung og • stór. Og um þessar yndislegu stundir er ég fullur sáttur heiminn við, leggst ég hugrór hvílu mína undir, hlæ og velti mér á allar lundir, unz ég sofna hægt í helgum frið. 19. júlí 1882 birti hann í Skuld kvæðið Sjófcrð, þrungið ólgandi lífsgleði og ástarmunaði. Fjör og þróttur gneista af kvæðum hans þetta vor og fyrra hlut sumars, og kímni og glettni vaka í leyn- um. En skyndilega kvað við nýjan tón í hörpu hins æskuglaða skálds. Vinur Hannesar, Arni Finsen, drukknaði í Höfn 5. júlí, og Idannes orti eftir hann kvæði, sem birtist í Skuld 2. ágúst. Idér kennir viðkvæmni og trega, sem benda fram til sumra kvæða hans frá efri árun- um. Raunar verður ekki sagt, að hann leggist djúpt í þessu kvæði um ráðningar á gátum lífs og dauða. Þó leita spurn- ingar á: Ég skil það ei og eigi skilja vil, að einmitt þú ert hniginn fyrst í val. Það er líkt og skuggi þessa atviks búi einnig yfir kvæðinu Niðaróði, sem birt- ist í Skuld 18. ágúst.1) Sjá upp’ á klettinum karlmann standa með kuldaglotti á fossinn líta; með köldu hjarta og köldum anda hann kastar steinum í fallið hvíta. Með göngustafnum hann klettinn keyrir, svo kveður við af því bergið svarta, en niðri’ í kólgunni köldu heyrir hann kuldahlátur síns eigin hjarta. 1) Fjórða kvæði hans í Skuld eftir útkomu Verðandi þetta ár var Þorsteinn Síðu- Hallsson, birt 31. október. I þessu kvæði bregður fyrir bölsýnni íróníu, sem er sjaldgæf hjá Hannesi. Hjá honum býr oftast gáski að baki háðinu. Þarna minnir hann dálítið á skáldbróður sinn Gest. Þótt mikill lífsþróttur búi í kvæðum Hannesar frá þessum tíma, hefur honum á stundum blöskrað smæð og umkomuleysi þjóðar sinnar. 14. janúar 1883 skrifar hann í hálfkæringi til Páls Mclstcds: „Sjálfir getum við ekkert; við erum svo litlir. Ósköp er annars vont að vera Islendingur. Múlbundinn af málinu og ómögulegur til að gjöra nokkuð vegna undirstöðuleysis. Lífsuppgáfa allra Isl. verður og hlýtur að vera þessi: að fá oní sig. — Ég hef reiknað út eftir fólksfjölda náttúrl., að það er 27 sinnum betra að vera danskur, 630. betra að vera þýzkur eða franskur, og 6086. betra að vera Kínverji. Þar eru þó nógu margir til að heyra og nóg til að bæta. Það vantar okkur raunar heldur ekki."1) Hann tekur nú að skrifa um Jónas Hallgrímsson. Það ríkir uppreisn og ólga gegn ríkjandi hugsunarhætti, þegar hann segir: „Það er görnul tilfinning sumra manna að kenna sárt í brjósti um og þar með lítilsvirða þá, sem yrkja, af því að slíkt gefi ekki af sér smjör né aðra feiti, og eins hitt að telja þá alla týnda sauði, sem ekki þegar taka embættispróf og ganga í konungsþjónustu."2) Vafalaust hefur honum orðið luigsað til þeirra örlaga, er sín biðu, ef skáld- skapur og bókmenntir sætu lengi í al- gjöru fyrirrúmi fyrir próflestri. 1) Ny kgl. saml. utilg. 134, 4to. 2) Jónas Hallgrímsson: Ljóðmæli og önnur rit 1883, bls. XXVI—XXVII. 3
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Andvari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.