Andvari

Årgang

Andvari - 01.04.1962, Side 75

Andvari - 01.04.1962, Side 75
ANDVARl (JRÆNAR IIJÓLBÖRUR 73 En Runólfi bónda kynntist ég meira, því lionum fylgdi ég einu sinni á oiustuvöll, — til brautargengis. Fyrir vestan þetta ganrla timburhús, númer þrjátíu eða fjömtíu og eitthvað á Vesturgötunni, var vandlega afgirtur svolítill lóðarblettur, svo sem eins og sex álna breiður, senr tilheyrði húseigninni. Bletturinn var jafnlangur og húsið var breitt. Umhyggjusamlega var hann varslaður, þessi blettur, og sá hluti hans sem að götunni sneri, girtur með bárujárni mannhæðarháu, en annarsstaðar var látin nægja sterk rimlagirðing úr tré og rimlamir telgdir upp í flugbeitta titti. — Ekki árennilegt fyrir stráka að klofa þar yfir. Á horninu, þar senr mættust bárujám og rirnlar, var grind á hjörurn, stundum var hún læst með hengilás, stundum ekki. Ég liélt í fyrstu að á þessuni bletti lilyti að vera ungur trjágróður í upp- vexti, hlúður mjúkum höndum, varinn af natni og alúð. En þegar ég gætti betur að, þá sá ég, mér til undrunar, að þar var ekkert slíkt, engin trjáplanta að berjast til vaxtar, enginn ribs- eða sólberjarunni, ekkert beð fyrir sumarblóm eða önnur blóm, ekkert nema gras, grár þykkur sinuflóki, og upp úr bonurn vorsins fyrstu strá að teygja brodda sína og — jú, bíðum við, þarna hvolfdu í einu borninu grænmálaðar hjólbörur og hafði verið rennt undir þær planka- búturn svo þær lægju ekki við jörð. Það var á einum sunnudegi, eftir hádegið, að ég var á einhverju slangri kringum húsið og varð þá gengið niður með plankagirðingunni, hinni oddhvössu. Sá ég þá að Runólfur gamli, eigandi hússins, sat á grænu hjólbörunum og lét sólina verma sig. Hann var í snjáðum en hreinlegum bláleitum jakkafötum úr einhverju þykku efni. Húfuna sína, nýlega, gráa derhúfu, hafði hann lagt á liné sér og sólargeislamir dönsuðu glannalega á drifhvítum skallanum. Þetta var þybbinn karl, dálítið lotinn í herðum, stutt, grátt alskeggið huldi munn- svipinn að mestu, en mig grunaði að gamlir hörkudrættir lægju þar í leyni undir flókanum. Augun, undir stómm, loðnum brúnum, vom dálítið rauð- sprengd, dálítið þreytuleg, dálítið grimrn. Þó var yfir þessum augum og þessu hrukkótta enni svipur þess drengskaparmanns, sem aldrei gengur viljandi á rétt annarra, en leyfir beldur engum að troða sér um tær. Þar sem hann sat þarna sýndist hann niðursokkinn í að virða fyrir sér stórar og loðnar vinnu- hendur sínar, eins og hann vildi spyrja þær: — hví emð þið hér? — hvað hafið þið gjört? Ég hallaði mér fram á sárhvöss tippin í rimlagirðingunni, eins og indverskur fakír á gaddabedda, og tók að glápa á gamla manninn. Ég var að reyna að koma því fyrir mig, hver eða livað það væri, sem hann minnti mig á. Hann minnti mig á eitthvað sérstakt, það var ég viss um. Elvar hafði ég séð þessar hrukkur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.