Andvari

Volume

Andvari - 01.04.1962, Page 95

Andvari - 01.04.1962, Page 95
ANDVARI UM HELJARSLÓÐARORUSTU 93 ari, og í Kevelaer orti hann sum beztu kvæði sín. En til lengdar undi hann ekki þessu lífi. Það var ólíkt því, sem hann átti að venjast, þar var enginn íslending- ur, og kom þar að lokum, að Gröndal tók sig upp og flutti til Louvain í Belgíu, því að þar var Ólafur frændi hans að húa sig undir doktorspróf. Stúdentar í Louvain lifðu í sukki og svalli, og segir Gröndal, að þar hafi verið samsafn af „ómögulegum súbjektum". Tóku þeir frændur nokkurn þátt í bílífi þessu, en þótti þó nóg um. Gröndal kom til Louvain vorið 1859. II En um þetta leyti voru stór tíðindi að gerast í Evrópu. Napóleon 3. Frakka- keisari hafði lofað ítölum og Sardiníu- mönnum því 1858 að hjálpa þeim til að reka Austurríkismenn burt úr Langbarða- landi. Til endurgjalds átti Frakkland að fá Savoyen og Nizza, og enn fremur var það til skilið, að prins Jerome Napoleon, frændi keisarans, skyldi fá Clotilde dóttur Victors Emanúels Sardiníukonungs. Eng- land beitti sér mjög eindregið á móti styrjöld þeirri, scm þarna var í aðsigi, en það kom fyrir ekki, stríðið brauzt út og lauk þannig, að her Frans Jósefs Austur- ríkiskeisara laut í lægra haldi fyrir her- sveitum Frakka og Itala. Þetta leiddi síðar til sameiningar og endurreisnar Ítalíu. Urslitaorustan í þessari styrjöld stóð 24. júní 1859 nálægt þorpinu Solferino á Langbarðalandi. Var þar barizt lengi dags í glóandi sólarhita og féll ógrynni liðs, um 30.000 manns. Þessum skelfilega degi lauk með því, að á brast hræðilegt þrumuveður með ofsaroki og hagléli, en Napoleon hélt velli, þó að hann hefði látið lið fleira. Þótti þessi orusta hafa verið hryllilegri en dæmi voru til, enda má nokkuð marka það af því, að af henni leiddi stofnun Rauða krossins. Nokkrum dögum eftir orustuna samdi Napolcon frið við Frans Jósef, og kom það mönnum mjög á óvart. Það má nærri geta, að ekki hefur annað verið tíðræddara í blöðum og marrna á meðal í Vestur-Evrópu þessa dagana en þessir stórviðburðir, og hefur þá oft borið á góma hjá hinum róstu- sömu stúdcntum í Louvain. Um þetta segir Gröndal í ævisögu sinni, Dægradvöh „Um þetta leyti var stríðið milli Frakka og Austurríkismanna á Ítalíu; þá voru allir hrifnir af Napoleon 3ja, og ég líka. Þá gerði ég Heljarslóðarorrust- una og datt mér mest af henni í hug á meðan við vorum að neyta miðdegis- verðar; kom þá stundum að mér hlátur, svo að þeir héldu, að ég væri ekki með öllum mjalla; en síðan ritaði ég upp og las Ólafi jafnóðum og lilógum við þá allmikið" (bls. 238). Þarna skýrir Grön- dal skilmerkilega frá ytra tilefni þess, að hann setti saman Söguna af I Ieljarslóðar- orrustu, en sjálf ber hún þessu einnig ærið vitni. Heljarslóðarorusta er orustan mikla við Solferino, og konungafólk það, sem við söguna kemur, eru furstarnir, sem riðnir voru við ófriðinn, enda nefndir réttum nöfnum. Þar eru Napoleon 3. og Evgenía keisarafrú, Napóleon keisara- frændi, Frans Jósef, Victoria Englands- drottning, Victor Emanúel og Clotilde dóttir hans. Aðalviðburðir sögunnar eiga líka rót sína að rekja til réttra, sögulegra staðreynda. Napoleon fer í stríðið lyrir bænir Langbarða, sem vilja ekki búa við áþján Austurríkismanna, Frans Jósel á við örðugan fjárhag að stríða og hefur mcsta stoð af Metternich Victoria reynir að koma í veg fyrir ófriðinn, m. a. með því að minna Napóleon á forna vináttu, Napoleon keisarafrændi fær Klóthildar, orustan sjálf, sigur Napóleons og loks óvæntir friðarsamningar milli keisaranna. Allt er þetta sögulega rétt. Nokkrir stjórnmálamenn eru einnig
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.