Andvari - 01.01.1952, Qupperneq 11
ANDVARI
Sveinn Bjömsson
7
Sveinn fór af landi burt í bili. Eigi kann ég neitt að greina frá
þessu starfi Sveins Bjömssonar. Það mun þó víst og er stutt frá-
sögnum manna, er til þekktu og leituðu ráða hans sem málaflutn-
ingsmanns, að gott liafi verið til hans að leita í þeim erindum.
Hann hefði verið ljúfur og þýður í viðmóti, hver sem í hlut
átti, hollráður og tillögugóður, en þó haldið fast á sínum máls-
stað. Hann vann sér því fljótt álit sem öruggur og góður lög-
fræðingur og leit út fyrir, að á því sviði ætti hann framaríka
framtíð.
Sveinn Björnsson kvæntist 2. september árið 1908. Kona
hans var Georgia Eloff Hansen, fædd 18. janúar 1884, dóttir
Hans Henrik Emil Hansens, lyfsala og justizráðs, í Hobro á Jót-
landi. Þau voru í hjónabandi í 44 ár. Eignuðust þau hjónin 6
mannvænleg börn. Eru það þessi:
1. Björn, kaupmaður, fæddur 15. okt. 1909, kvæntur Nönnu
Egilsdóttur, söngkonu.
2. Anna Catherine Aagot, fædd 19. nóv. 1911, gift Sverri
Patursson, dýralækni. Dáin í sept. 1952.
2. Elenrik, sendiráðunautur í París, nú nýskeð skipaður for-
setaritari, fæddur 2. sept. 1914, kvæntur Gróu Torfhildi
Jónsdóttur.
4. Sveinn, tannlæknir, fæddur 21. júní 1916, kvæntur Gurli
Andersen.
5. Ólafur, héraðsdómslögmaður, fæddur 3. nóv. 1919, kvænt-
ur Þórunni Árnadóttur.
6. Elísabet, fædd 22. júní 1922, gift Davíð Jónssyni, stór-
kaupmanni.
Með stjórnarleyfi frá 5. desember 1923 tók Sveinn Bjömsson
hörnum sínum ættamafnið Björnsson.
Frú Georgia Björnsson var manni sínum ávallt mjög sam-
nent og veitti honum ómetanlegan styrk og aðstoð í hans
hingsmikhi og vandasömu störfum. Heimili þeirra hjóna
um-
var