Andvari - 01.01.1952, Page 33
andvam
Skúli Magnússon og Nýju innréttingamar
29
fjárframlög og annan stuðning, en slík tækifæri voru jafnan
ósleitilega notuð til þess að treysta sem fastast forn sérréttindi og
valdaaðstöðu.
Með siðskiptum verður hér allmikil breyting á. Kristján kon-
ungur III kemst til ríkis í Danmörku með tilstyrk vopnavalds. í
slóð borgarastyrjaldar koma svo siðskiptin. Aðstaða hans á kon-
ungsstóli var því frá upphafi ólíkt sterkari en fyrirrennara hans,
er höfðu orðið að kaupa tign sína með hörðum skilmálum í samn-
ingum við aðalinn og kirkjuvaldið. Við siðskiptin slær konungur
eign sinni á geysimikla fjármuni í löndum og lausum aurum, er
kirkjan hafði um langan aldur saman dregið. Varð konungsvald-
inu hinn mesti styrkur að fjánnunum þessum, en drjúgum mun-
aði einnig um það, að héðan af varð konungurinn æðsti yfirmað-
ur kirkjunnar og arftaki kirkjuvaldsins, er að vísu var enn mikið,
þótt nokkuð væri það með öðrum hætti en fyrrurn. Loks kemur
hér til greina þróun borgarastéttar, kaupmenn og iðnaðarmenn,
sem nú tekur að ryðja sér til rúrns í skjóli konungsvaldsins og
krefja réttar síns til áhrifa og umsvifa í þjóðfélaginu, í andstöðu
við hina fomu og rótgrónu forréttindastétt lénsaðalsins. Kalla má
úð úrslit verði x þeirri baráttu með einveldistöku konungs við at-
beina borgaranna 1660.
Það yrði of langt mál að lýsa hér nánar þróun konungsvalds-
ms fram til þess er einveldið hefst og öflurn þeim, sem þar voru
að verki. Það væri auk heldur of mikið í fang færzt að rekja
gang þessara mála hér á landi á sama tíma nema mjög stuttlega.
Sú saga hefst með hinni miklu og alkunnu fjámpptekt eftir hrun
kaþólsku kirkjunnar. Jafnhliða byrjar viðleitni konungs til þess
að draga verzlun landsins undir dönsk yfirráð, sjálfum sér til
fjár og til eflingar hinni ungu og vanmegna verzlunarstétt Dana.
Hér ber að hafa það í huga, að frarn til þessa höfðu þýzkir kaup-
^ienn mjög drottnað yfir verzlun Dana og var það eitt hið mesta
áhugamál Kristjáns III. og Friðriks II. að hnekkja þeirri yfir-
drottnun. Gekk hin danska verzlun hér á landi allskrykkjótt í
%rstu, en fljótlega heppnaðist konungi að ná föstum tökum á