Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1952, Side 76

Andvari - 01.01.1952, Side 76
72 Vilhjálmur Þ. Gíslason ANDVARI Ég efast um, að síðan á dögum Snorra Sturlusonar hafi nokk- ur maður fengizt við íslenzk fræði af meiri þekkingu, af skemmti- legra jafnvægi lífs og listar og af hófsamlegri skilningi og þó djörfum og djúpum á afstöðu listar og lærdóms og lífsins sjálfs. Snorri lýsti þessu í formála Eddu sinnar, Sveinbjörn í nokkr- um óprentuðum skólaræðum. Þar segir hann sína húmanistísku lífsskoðun, soðna saman við smíðaeld íslenzkrar sögu og tungu úr platónsku og kristindómi. Þar talar hann um, að dyggð og þekking renni af samkynja rótum, — að dyggðin, sem er elskan til þess góða, verði að krafti í viljanum, og þekkingin, sem er elskan til þess sanna, að krafti í skilningnum. Hann talar um, að vísindin séu þá fyrst rétt stunduð, þegar þau eru stunduð af sannleikselsku og menn geri sig móttækilega fyrir hinu háleita í þekkingunni. Þannig vildi Sveinbjörn Egilsson lifa lífi sínu og stunda fræði sín og list. Minningu Sveinbjarnar hefur verið haldið í heiðri en varla í hávegum. Hans er minnzt sem hins merka fræðimanns og ágæta og málsnjalla þýðara. Hann var einnig annað og miklu meira. í öllu lítillæti hjarta síns og stolti starfshyggju sinnar var hann eitt af stórmennum íslenzkrar menningarsögu. Hann er tákn heillar menntastefnu, sem í honum náði hæstum blóma sínum og endanlegri fyllingu, áður en hún fór að fjara út, — hinnar klassisku kristilegu lífsskoðunar á þjóðlegri rót. Hann var síðasti og glæsilegasti Grikkinn í íslenzkri mennt. Sumt er úrelt af þeim fræðum, eins og verða vill, og þótt verk hans 1 íslenzkum fræðum séu enn í gildi á vígvelli þeirra vísinda, er hans klassiski skjöldur varla borinn lengur í lifsins stríði. En a skjöld Sveinbjarnar Egilssonar hefur ekki fallið. Hann er enn merki liðins glæsitíma, sem var auðugur í einfaldleik sínum, merki hins fagurgóða manns, sem var í senn tákn tírnans og yfir hann hafinn í lærdómi sínum og list. Þess vegna er Sveinbjörn Egilsson lifandi og frjósamur kraftur í íslenzkum fræðum hundrað árum eftir dauða sinn og verður lengi enn.

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.